Gröndalshús í loftið í kvöld 14. janúar 2010 15:24
Í kvöld verður Gröndalshús híft af sökkli sínum að Vesturgötu 16 b og flutt út í Örfirisey þar sem Völundarverk Reykjavík er tímabundið með aðsetur til endurgerðar eldri húsa samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Undirbúningur að flutningum hefur staðið yfir að undanförnu og í dag var Vesturgötu frá horni Ægisgötu til Garðastrætis lokað til að framkvæmdamenn gætu athafnað sig, en meðal annars þarf að fjarlægja ljósastaur tímabundið. Kranabíl verður komið fyrir um kvöldmatarleytið og hann gerður klár með ballest. Endanleg tímasetning á flutningi ákvarðast í samráði við vaktstjóra lögreglu, en gera má ráð fyrir að Gröndalshúsi verði lyft á flutningavagn milli kl. 8 - 9 í kvöld. Stálbitum hefur verið komið fyrir undir húsinu og verður þvi lyft á þeim. Húsið verður flutt með skorsteini og þurfti að styrkja sérstaklega í kringum hann með stálgrind. Þá hafa innviðir hússins verið styrktir fyrir flutninginn. Húsið með stálbitum vegur um 33 tonn. Gröndalshús er byggt árið 1882. Það er vel varðveitt timburhús með sérstöku byggingarlagi og hefur tekið litlum breytingum frá upphafi. Það hefur einnig mikið menningarsögulegt gildi en í því átti Benedikt Gröndal, skáld og náttúrufræðingur, heima um tíma og er það kennt við hann síðan. Það stendur nú á baklóð við Vesturgötu 16b. Völundarverk mun gera við húsið jafn að utan sem innan og er áætlað að því verði lokið fyrir árslok. Framtíðarstaðsetning hússins hefur ekki verið ákveðin.
Mest lesið Aron Can heill á húfi Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Erlent Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Innlent Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Innlent Lögreglan leitar tveggja manna Innlent Hneig niður vegna flogakasts Innlent Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Innlent Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Innlent Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Innlent Fleiri fréttir Hneig niður vegna flogakasts Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Lögreglan leitar tveggja manna Frakkar viðurkenna Palestínu og stjórnarandstaðan á Alþingi mælist illa í nýrri könnun Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Hægt nokkuð á virkninni frá því í gærmorgun Aron Can heill á húfi „Sorglega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður Ljóst að stjórnarandstaðan græddi ekki á „kjarnorkuákvæðinu“ Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Tónleikar stöðvaðir vegna veikinda Arons Can Launaði neitun á gistingu með löðrungi Óvinsældir eftir þinglok og meint leyndarmál frönsku forsetahjónanna Innan við þriðjungur andvígur olíuleit Ætlar fyrir Mannréttindadómstólinn og segir fréttaflutning villandi Gasútstreymi minnkandi en gosmóðu enn spáð Vínsalar látnir klára vakt eftir andlát í versluninni Annar stór skartgripaþjófnaður í miðborginni „Ef þú móðgaðist, þykir mér það leitt“ Spellvirkinn líka grunaður um líkamsárás og mansal Staða Sjálfstæðisflokksins versnar eftir þinglok Hóteleigendur vilja byggja á verndarsvæði og ábúendur ekki sáttir Sjálfstæðisflokkur sjaldan mælst minni Þurfti að hætta sundi af öryggisástæðum Gylfi Ægisson er látinn Hundruð kvenna einmana: „Er skrýtið að eiga engar vinkonur?“ Ekið á ökumann rafmagnshlaupahjóls og gámur á hliðina Sjá meira