Varar við hryllilegum kjörum 12. janúar 2010 06:00 Það er bjarnargreiði að bjóða ungu fólki lán á svo slæmum kjörum, segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra. Fréttablaðið/GVA
Ekki er ljóst hvort efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur heimildir til að stöðva veitingu svokallaðra SMS-lána hér á landi. Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir ráðuneytið nú kanna hvort hægt sé að stöðva lánveitingarnar. Neytendasamtökin sendu Gylfa erindi fyrir áramót þar sem varað var við lánunum, og óskað eftir því að komið yrði í veg fyrir frekari framgang þeirra hér á landi. „Ég deili fyllilega áhyggjum Neytendasamtakanna og tel að þetta sé ekki jákvæð þróun," segir Gylfi. Hann vari fólk eindregið við því að taka lán á svo „hryllilegum" kjörum. Lánunum sé einkum beint að ungu fólki, sem hafi margt hvert komið sér í miklar skuldir í þenslunni. Verið sé að gera fólki mikinn bjarnargreiða með því að bjóða svo óhagstæð lán. Hægt er að fá frá 10 til 40 þúsund krónur að láni í hvert skipti. Lántakandinn þarf að skrá sig á vefsíðu lánafyrirtækisins og sendir svo SMS til að fá lánið. Endurgreiða þarf lánið eftir fimmtán daga. Af 10 þúsund króna láni greiðist 2.500 króna kostnaður, sem jafngildir 600 prósent kostnaði á ársgrundvelli samkvæmt erindi Neytendasamtakanna. Ekki náðist í forsvarsmann Kredia, sem býður upp á SMS-lánin á Íslandi, við vinnslu fréttarinnar. - bj
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent Fleiri fréttir Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Sjá meira