Innlent

Framkvæmdir hefjist í haust

Hörður Arnarson
Hörður Arnarson Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Landsvirkjun auglýsti um liðna helgi útboð á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) á þremur stærstu verkþáttum framkvæmda vegna Búðarhálsvirkjunar. Gangi áætlun eftir er áformað að framkvæmdum við Búðarhálsvirkjun verði lokið haustið 2013.

Kærunefnd útboðsmála dæmdi Landsvirkjun brotlega fyrr í mánuðinum þegar tveir lægstbjóðendur sem ekki fengu verkunum úthlutað kærðu á þeim grundvelli að bjóða hefði átt verkið út á EES.

„Við vorum að reyna að koma til móts við ástandið á markaðnum, en það tókst ekki," segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.

Samkvæmt auglýsingu Landsvirkjunar felur útboðið í sér byggingu stöðvarhúss og inntaksmannvirki ásamt grefti frárennslisganga og gerð stíflu. Inni í þessu eru einnig þeir þættir sem kærðir voru til útboðsnefndar.

Útboðin verða opnuð í lok ágúst og segist Hörður vonast til þess að framkvæmdir geti hafist í haust.

„Vonandi verðum við ekki kærð aftur, en það er aldrei hægt að útiloka það," segir Hörður. „Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að það gerist ekki."

Kostnaðaráætlun Búðarhálsvirkjunar nemur 200 milljónum dollara eða um 25 milljörðum króna á núvirði. - sv








Fleiri fréttir

Sjá meira


×