Borguðu 894 milljónir fyrir innlenda ráðgjöf árið 2009 10. febrúar 2010 04:00
Heildarkostnaður skilanefndar Kaupþings vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu á síðasta ári nemur 3.225 milljónum króna. Kostnaðurinn skiptist þannig að 2.331 milljón var vegna erlendrar sérfræðiráðgjafar og 894 milljónir voru vegna ráðgjafar hér innanlands. Þetta kemur fram í svari skilanefndarinnar við fyrirspurn Fréttablaðsins. Ekki liggur hins vegar fyrir hvernig kostnaðurinn skiptist á milli þeirra fyrirtækja sem leitað hefur verið til. „Ef þær upplýsingar verða veittar munu þær fyrst verða birtar kröfuhöfum," segir í svarinu. Í nýjustu skýrslu skilanefndar Kaupþings til kröfuhafa, sem aðgengileg er á vef bankans, kemur fram hvaða fyrirtæki hafa helst unnið að ráðgjöf fyrir skilanefndina. Þar eru nefndar til sögu lögmannsstofurnar Lex, Juris, Landslög og Fulltingi hér innanlands, en að auki hafa Capacent, Deloitte og PriceWaterhouseCoopers á Íslandi unnið fyrir skilanefndina. Af erlendum ráðgjöfum er helst að nefna fjárfestingarbankann Morgan Stanley sem veitir nefndinni fjármálaráðgjöf og lögfræðistofuna Weil, Gotshal & Manges í Bretlandi, sem er aðalráðgjafi skilanefndarinnar varðandi lögsóknir og endurheimtuferla. Um tuttugu aðrar erlendar lögfræðistofur um heim allan eru taldar upp í skýrslu skilanefndarinnar til kröfuhafa. „Hlutverk skilanefndar Kaupþings er svipað skiptastjóra í þrotabúi. Skilanefnd ber að hámarka eignir búsins á kostnað búsins. Kostnaður fellur því á kröfuhafa, ekki skattgreiðendur," segir í svari skilanefndarinnar til blaðsins. „Frá hausti 2008 til ársloka 2009 var mikið leitað til erlendra ráðgjafa og því er kostnaður vegna erlendrar sérfræðiráðgjafar mun hærri en vegna innanlendrar." Kostnaður við rekstur Kaupþings banka er greiddur af eignum hans, en skilanefnd og starfsfólk bankans er sagt hafa umsjón með stóru eignasafni og leysa flókin úrlausnarefni á mörgum sviðum. „Kröfuhafar hafa lagt áherslu á að skilanefnd og starfsfólk hennar kappkosti að tryggja hámarksvirði eigna bankans og leiti utanaðkomandi sérfræðiráðgjafar þegar við á. Í mörgum tilvikum greiða lántakendur kostnað vegna aðkeyptrar ráðgjafar. Þess ber að geta að þóknanatekjur af lánasöfnum bankans standa undir öllum rekstrarkostnaði að undanskilinni aðkeyptri sérfræðiráðgjöf." Kaupþing var stærsta fyrirtæki landsins og með starfsemi í um fimmtán löndum og björgun verðmæta og heildarendurskipulagning lánasafnsins því mikið verk, að því er fram kemur í svari skilanefndar bankans. „Umfang starfseminnar er töluvert enda stýrir bankinn eignum að verðmæti um það bil 1.700 milljarðar króna miðað við efnahagsreikning bankans frá því í lok júní í fyrra." olikr@frettabladid.is
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira