Trefillinn jafnlangur jarðgöngunum 10. febrúar 2010 05:00 Fríða Björk Gylfadóttir með það sem búið er að prjóna af treflinum sem stefnt er á að verði jafnlangur og jarðgöngin milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. mynd/úr einkasafni
Á Siglufirði er í gangi óvenjulegt prjónaverkefni en listakonan Fríða Björk Gylfadóttir stendur fyrir því að prjónaður sé 17 kílómetra langur trefill, sem ná á frá miðbæ Siglufjarðar yfir í miðbæ Ólafsfjarðar, og er þá jafnlangur jarðgöngum þeim sem þar munu koma á milli. „Ég fékk þessa hugmynd í tengslum við vígslu ganganna nú í haust en trefillinn á að vera táknræn tenging á bæjarfélögunum, þar sem þau eru tengd saman á einkar hlýlegan hátt,“ segir Fríða Björk en um áttatíu manns, frá tuttugu stöðum, hafa hjálpað til við prjónaskapinn undanfarið. Lagt er upp með að göngin milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar verði vígð í september og Fríða Björk segist vera orðin bjartsýn á að hægt verði að ljúka við trefilinn fyrir þann tíma. „Nú á þremur vikum erum við komin með 178,59 metra og það er prjónað úti um allt. Við höfum komið garni og prjónum fyrir á biðstofum lækna, hárgreiðslustofum, kaffistofum fyrirtækja og fleiri stöðum hér í bænum og allir eru hvattir til að prjóna. Svo fáum við bútana til okkar og þeir eru saumaðir saman.“ Hvernig treflinum sjálfum verður svo komið fyrir er enn í þróun en Fríða Björk segir að sú hugmynd hafi meðal annars komið upp að leggja trefilinn hreinlega eftir veginum, en það eigi allt eftir að koma betur í ljós. Hægt er að fylgjast með framgangi verkefnisins á vefsíðunni www.frida.is.- jma
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Fleiri fréttir „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar Sjá meira