Innflytjendur almennt með jákvæða upplifun af Íslandsdvöl 10. febrúar 2010 16:41 Háskólinn á Bifröst.
Innflytjendur á Íslandi virðast almennt hafa jákvæða upplifun af því að búa hér á landi þrátt fyrir sumir þeirra hafi upplifað ákveðna erfiðleika við komuna til landsins. Margir þeirra telja sig þó hafa orðið varir við aukna fordóma í þeirra garð á síðastliðnum árum. Þetta kemur fram í skýrslu sem byggir á viðtalsrannsókn sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst stóð fyrir á sumar og haustmánuðum 2009. Í rannsókninni voru tekin viðtöl við innflytjendur og fulltrúa sveitarfélaga og annarra stofnanna sem koma að starfi með innflytjendum í þremur sveitarfélögum, á Akranesi, í Fjarðabyggð og í Vesturbyggð. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort og þá hvernig félagsleg þátttaka innflytjenda tengist því hversu sterkt þeir upplifa sig sem hluta af samfélaginu og hvernig þeim hefur gengið að aðlagast á Íslandi. Jafnframt var markmið að greina aðkomu sveitarfélaga og annarra stofnanna að málefnum innflytjenda í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Viðmót heimamanna almennt jákvætt „Helstu niðurstöður úr viðtölum við innflytjendur voru þær að almennt höfðu þeir jákvæða upplifun af því að búa á Íslandi þrátt fyrir að hafa upplifað ákveðna erfiðleika við komuna til landsins. Flest töluðu um að viðmót heimamanna sem fyrir voru hafi almennt verið jákvætt en minntust jafnframt á að þau höfðu orðið vör við fordóma í sinn garð sem hafi jafnvel orðið meira áberandi á síðastliðnum árum. Margir töluðu um að hafa komið til Íslands með það markmið að vinna í nokkur ár og flytja svo af landi brott, en tóku svo ákvörðun síðar meir að setjast að á Íslandi. Ástæður fyrir því voru helst að hér höfðu þau byggt upp sitt líf, keypt sér húsnæði og að samfélagið byði upp á góða og örugga framtíð fyrir börnin þeirra. Allir þeir sem talað var við og höfðu tekið ákvörðun um að setjast að á Íslandi töluðu um mikilvægi þess að geta talað íslensku, bæði til að geta orðið virkari þátttakendur í samfélaginu og vegna þess sjálfstæðis sem því fylgir að geta talað tungumálið," segir í tilkynningu frá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst.Nánar má kynna sér efni skýrslunnar hér.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira