Innlent

Börn og unglingar veigra sér við að nota geðlyf vegna fordóma

Karen Kjartansdóttir skrifar
Aðstoðarlandlæknir segir talsvert bera á því að börn og unglingar sem þurfa að taka geðlyfið ritalín vilji það ekki af ótta við að vera stimpluð sem fíklar.

Geðlyfjum vegna ofvirkni og athyglisbrests barna er mun oftar ávísað hér á landi en tíðkast annar staðar á Norðurlöndum. Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir segir þetta þurfi að rannsaka en svo virðist sem þessi lyf virðist í æ meira mæli misnotuð eftir að framboð á amfetamíni dróst saman hér á landi.

Rítalín er orðið meira vandamál en það var áður og við viljum gjarnan fara að fylgjast betur með hverjir það eru sem fá útskrifað Rítalín. Það er mjög gott lyf fyrir þá sem þurfa á því að halda vegna ofvirkni og atyglisbrests. En þá taka þeir það í réttum skömmtum sem eru hundraðfallt minni en þeir sem misnota lyf taka. En það er ástæða núna að hafa meira eftilit með Rítalínnotkunni," segir Matthías.

Hann minnir samt á að fólk verði að fara varlega í umræðu um þessi lyf. Rítalín hafi reynst börnum sem á því þurfa að halda vel. Þá verði að hafa í huga að börn sem ekki séu meðhöndluð við röskunum á borð við athyglisbrest og ofvirkni sé hættara við að sækja í vímuefni seinna meir. Rétt lyfjanotkun dragi úr þessari hættu.

„Það hefur borið á því vegna umræðunnar að krakkar eru orðnir dálítið hræddir við að segja frá því að þeir noti Rítalín þar sem þá sé farið að líta á þá sem dópista. Þetta er auðvitað mjög slæmt því börnin hafa mikið gagn af þessu og það eru ekki þau sem mistnota lyfin. Það er fullorðið fólk."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×