Lögreglumaðurinn blindur Óli Tynes skrifar 14. júlí 2010 09:28 Breskur lögreglumaður skoðar aðstæður. Mynd/ AFP.
Breska lögreglumanninum David Rathband sem morðinginn Raoul Moat skaut í andlitið með haglabyssu hefur verið sagt að hann hafi misst sjón á báðum augum og verði blindur upp frá þessu. Rathband sem er 42 ára gamall var einn á eftirlitsferð í lögreglubíl þegar hann rakst á Moat sem hafði þá þegar sagst myndu myrða alla þá lögregluþjóna sem hann næði til. Moat var vopnaður tvíhleyptri afsagaðri haglabyssu en Rathband var óvopnaður. Rathband segir að hann hafi séð Moat koma hlaupandi að bíl sínum og miða á sig haglabyssunni. Þeir hafi horfst í augu andartak og hann hafi ekki séð neitt. Engan vott um tilfinningar. Það var það síðasta sem lögregluþjónninn sá um ævina því Moat skaut á hann úr báðum hlaupum byssunnar. Annað skotið lenti í andliti hans en hitt í öxl. Þegar Moat var farinn tókst Rathband að kalla á hjálp um talstöð sína. Auk Rathbands skaut Moat og særði fyrrverandi kærustu sína og barnsmóður og myrti nýjan kærasta hennar. Eftir vikulanga eftirför lauk þessu öllu með því að Moat skaut sjálfan sig í höfuðið eftir að lögreglan hafði króað hann af.
Mest lesið Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Innlent Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Innlent Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Innlent Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Innlent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ Innlent Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Innlent Fleiri fréttir Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Rússar sagðir nota efnavopn í Úkraínu í auknum mæli Tveir ferðamenn létust í fílaárás í Sambíu Stunguárás í Tampere hvorki talin hryðjuverk né rasísk árás Sænskur glæpaforingi tekinn fastur í Tyrklandi Sjá meira