Innlent

Stakk blóðugum fingri upp í lögreglu

Maðurinn er ákærður fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Maðurinn er ákærður fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega fertugan karlmann fyrir brot gegn valdstjórninni og gegn sóttvarnalögum.

Manninum, sem er íslenskur en nú búsettur í Gautaborg í Svíþjóð, er gefið að sök að hafa að morgni sunnudagsins 10. maí á síðasta ári veist með ofbeldi að lögreglumanni sem var við skyldustörf. Atvikið átti sér stað á þáverandi heimili árásarmannsins í Reykjavík.

Maðurinn er ákærður fyrir að hafa stungið blóðugum fingri sínum í munn lögreglumannsins. Árásarmaðurinn vissi að hann var smitaður af lifrarbólgu C og stofnaði þannig á ófyrirleitinn hátt lífi og heilsu lögreglumannsins í augljósan háska enda hætta á því að hann smitaðist af sjúkdóminum.

Skammt er um liðið síðan tveir handrukkarar voru ákærðir fyrir gróf ofbeldisverk gegn ungum manni.

Annar handrukkarinn stappaði á manninum, hótaði að smita hann af lifrarbólgu, ógnaði honum með blóðugri sprautunál, sem hann stakk síðan í eyrnasnepil hans. Sá sem stunginn var greindist síðan með lifrarbólgu C. Hann gerir kröfu um ríflega fjögurra milljóna króna bætur.- jss



Fleiri fréttir

Sjá meira


×