Stakk blóðugum fingri upp í lögreglu 7. september 2010 05:00 Maðurinn er ákærður fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega fertugan karlmann fyrir brot gegn valdstjórninni og gegn sóttvarnalögum. Manninum, sem er íslenskur en nú búsettur í Gautaborg í Svíþjóð, er gefið að sök að hafa að morgni sunnudagsins 10. maí á síðasta ári veist með ofbeldi að lögreglumanni sem var við skyldustörf. Atvikið átti sér stað á þáverandi heimili árásarmannsins í Reykjavík. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa stungið blóðugum fingri sínum í munn lögreglumannsins. Árásarmaðurinn vissi að hann var smitaður af lifrarbólgu C og stofnaði þannig á ófyrirleitinn hátt lífi og heilsu lögreglumannsins í augljósan háska enda hætta á því að hann smitaðist af sjúkdóminum. Skammt er um liðið síðan tveir handrukkarar voru ákærðir fyrir gróf ofbeldisverk gegn ungum manni. Annar handrukkarinn stappaði á manninum, hótaði að smita hann af lifrarbólgu, ógnaði honum með blóðugri sprautunál, sem hann stakk síðan í eyrnasnepil hans. Sá sem stunginn var greindist síðan með lifrarbólgu C. Hann gerir kröfu um ríflega fjögurra milljóna króna bætur.- jss
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira