Innlent

Fimm milljónir manna voru strandaglópar

Upplýsingar um ráðstefnu Keilis er að finna á slóðinni
http://en.keilir.net/keilir/conferences/eyjafjallajokull. 
Fréttablaðið/GVA
Upplýsingar um ráðstefnu Keilis er að finna á slóðinni http://en.keilir.net/keilir/conferences/eyjafjallajokull. Fréttablaðið/GVA
Leiðtogar, sérfræðingar og embættismenn, innan Evrópu og utan, ræða hvað betur hefði mátt fara og afleiðingar gossins í Eyjafjallajökli á ráðstefnu Flugakademíu Keilis 15. til 16. þessa mánaðar.

„Þegar Eyjafjallajökull byrjaði að gjósa í apríl 2010 hafði askan frá gosinu gífurlega áhrif á flugumferð í Evrópu. Áætlað er að flugfélögin hafi tapað 23 milljörðum króna á degi hverjum. Í Evrópu var 16.000 flugferðum aflýst þann 16. apríl og jafnmörgum þann 17. apríl 2010. Þann 21. apríl hafði 95.000 flugferðum verið aflýst vegna gossins. Lokun flugsvæða skildi um fimm milljónir manna eftir sem strandaglópa,“ segir í tilkynningu Keilis og bent er á að áhrif gossins hafi verið víðtækari en áhrif hryðjuverka­árásanna í Bandaríkjunum 11. september 2001.

Flugakademían boðar því til ráðstefnu um málið, en hún er haldin í samstarfi við forseta Íslands, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, fjölda stofnana í flugiðnaði, Inspired by Iceland, Icelandair, bandaríska sendiráðið og sendiráð Rússneska sambandsríkisins.

Ræða á hvað hefði mátt fara betur og til hvaða aðgerða þurfi að grípa. „Þetta er tækifæri fyrir evrópska hagsmunaaðila að ræða við og bera saman vinnuferli við samstarfsmenn frá Bandaríkjunum og Asíu.“

Ráðstefnan fer fram í Ásbrú á Keflavíkurflugvelli. - óká



Fleiri fréttir

Sjá meira


×