Fimm milljónir manna voru strandaglópar 7. september 2010 03:15 Upplýsingar um ráðstefnu Keilis er að finna á slóðinni http://en.keilir.net/keilir/conferences/eyjafjallajokull. Fréttablaðið/GVA
Leiðtogar, sérfræðingar og embættismenn, innan Evrópu og utan, ræða hvað betur hefði mátt fara og afleiðingar gossins í Eyjafjallajökli á ráðstefnu Flugakademíu Keilis 15. til 16. þessa mánaðar. „Þegar Eyjafjallajökull byrjaði að gjósa í apríl 2010 hafði askan frá gosinu gífurlega áhrif á flugumferð í Evrópu. Áætlað er að flugfélögin hafi tapað 23 milljörðum króna á degi hverjum. Í Evrópu var 16.000 flugferðum aflýst þann 16. apríl og jafnmörgum þann 17. apríl 2010. Þann 21. apríl hafði 95.000 flugferðum verið aflýst vegna gossins. Lokun flugsvæða skildi um fimm milljónir manna eftir sem strandaglópa,“ segir í tilkynningu Keilis og bent er á að áhrif gossins hafi verið víðtækari en áhrif hryðjuverkaárásanna í Bandaríkjunum 11. september 2001. Flugakademían boðar því til ráðstefnu um málið, en hún er haldin í samstarfi við forseta Íslands, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, fjölda stofnana í flugiðnaði, Inspired by Iceland, Icelandair, bandaríska sendiráðið og sendiráð Rússneska sambandsríkisins. Ræða á hvað hefði mátt fara betur og til hvaða aðgerða þurfi að grípa. „Þetta er tækifæri fyrir evrópska hagsmunaaðila að ræða við og bera saman vinnuferli við samstarfsmenn frá Bandaríkjunum og Asíu.“ Ráðstefnan fer fram í Ásbrú á Keflavíkurflugvelli. - óká
Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Fleiri fréttir Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Sjá meira