Ungur háskólanemi bruggar og selur vinum sínum „vöruna“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 7. september 2010 18:45
Há áfengisgjöld hins opinbera hafa breytt áfengisneyslu landsmanna og heimabruggun færist stöðugt í aukana. Ungum manni ofbauð hátt verð í Vínbúðum ríkisins og nú bruggar hann af miklum móð fyrir sig og vini sína. Ísland og Noregur eru með hæstu áfengisgjöld sem þekkjast í Evrópu. Norðurlöndin eru með lægri áfengisgjöld, en lægst eru þau í Danmörku og Finnlandi. Heimabruggun og smygl á áfengi hefur verið vandamál á Íslandi og ljóst er að ákveðin fylgni er á milli áfengisverðs og heimabruggunar og smyglaðs áfengis. Bent hefur verið á að erfitt er fyrir ríkisvaldið að stýra mannlegri breytni og hegðun nema að mjög takmörkuðu leyti. Að undanförnu hafa birst mikið af fréttum um tengsl hás áfengisverðs og aukinnar heimabruggunar. Um daginn auglýsti verslanakeðjan Europris bruggtæki til sölu og þau seldust upp og keðjan þurfti að panta meira, en fólk er í auknum mæli að prófa sig áfram með heimaframleiðslu á léttvínum. Ungur háskólanemi, sem við skulum kalla „Brynjar" hefur verið að brugga fyrir sig og vini sína því honum ofbauð hátt áfengisverð í Vínbúðunum. Hann er með félaga með sér í „framleiðslunni. „Svo í kjölfarið fórum við og lásum okkur til um heimabruggun og fórum af krafti í þetta," segir maðurinn. Nokkru síðar fóru Brynjar og félagi hans að að brugga sterkt áfengi og urðu sér úti um græjur til þess með leiðum sem hann vill ekki fara nánar út í. Hann segist aldrei hafa farið út í bruggun nema af því að áfengi var svo hátt verðlagt. Hann segir að stjórnvöld hafi líklega gengið of langt í hækkunum. Brynjar bruggar fyrir sig og vini sína og tappar af á brúsa sem þeir kaupa í heildsölu. Brynjar er fullur sjálfstrausts, enda kynntu þeir félagarnir sér tæknina vel. Hann segir þetta tiltölulega einfalt og að „vodkinn" sem þeir bruggi hafi hlotið góðar viðtökur, en þeir rukka á bilinu eitt til tvö þúsund fyrir lítrann. „Þetta er enginn smirnoff, en hérna þetta er vel drykkjarhæft. Maður finnur ekkert spírabragð eða neitt," segir hann. Lítur þú á þig sem landasala? „Nei, alls ekki." Hvað ertu þá? „Ég er bara ungur námsmaður sem er aðeins að reyna að nota aurana í eitthvað annað og geri vinum mínum greiða og læt þá fá áfengi á töluvert lægra verði." Líturðu svo á að þú sért að brjóta lög? „Já, svona svart á hvítu. En ég lifi nú þeirri trú að þetta sé á gráu svæði." Brynjar segir að löggjafinn þurfi að setjast yfir áfengislöggjöfina, en að hans mati er hún óskýr. Brynjar segir að ungt fólk í dag drekki í miklum mæli heimabruggað áfengi. Nánast annar hver maður á Þjóðhátíð hafi haft landa um hönd, eins og hann orðar það. Hann segist ekki skynja að það sé nokkur vínmenning á Íslandi. Eflaust deila fleiri þeirri skoðun hans.
Tengdar fréttir Brugg og smygl eykst með hærri sköttum neytendur Helmingur fólks á aldrinum 18 til 29 ára verður var við meira heimabrugg og smygl á áfengi nú heldur en áður. Meira en helmingur fólks kaupir annaðhvort minna áfengi eða ódýrari tegundir. 17. ágúst 2010 06:00 Lögreglan stöðvaði bruggframleiðslu á Akureyri Lögreglan á Akureyri stöðvaði bruggfarmleiðslu í einbýlishúsi í bænum í gær og lagði hald brugg og búnað. 7. september 2010 07:41 Áfengisverðið hefur áhrif á vísitölu og vínmenningu Verð á áfengi hefur hækkað mikið á síðustu árum. Alþingi samþykkti í fyrra breytingar á áfengisgjöldum, sem gerðu það að verkum að gjöldin hækkuðu um rúm fjörutíu prósent á tólf mánuðum. 14. ágúst 2010 09:15 Skattpíndur sopi Það er orðið ljóst að ríkisstjórnin gekk of langt með gífurlegum hækkunum á sköttum á áfenga drykki í fyrra. Niðurstaðan hefur orðið sú sem ýmsir spáðu; sala áfengis í ÁTVR hefur minnkað og þannig hefur tekjustofninn sem ríkisstjórnin hugðist skattpína dregizt saman. 16. ágúst 2010 06:00 Bændur handteknir fyrir brugg Tveir bændur á sjötugsaldri voru handteknir í Hrunamannahreppi í gær vegna umfangsmikillar landaframleiðslu. Við leit á sveitabænum fundust um 800 lítrar af gambra og 100 lítrar af landa sem lögreglan segir 35% að styrkleika. Að auki fundust mikið magn tækja og tóla sem nauðsynleg eru til landaframleiðslu. 21. júlí 2010 16:19 Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Fleiri fréttir Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Sjá meira
Brugg og smygl eykst með hærri sköttum neytendur Helmingur fólks á aldrinum 18 til 29 ára verður var við meira heimabrugg og smygl á áfengi nú heldur en áður. Meira en helmingur fólks kaupir annaðhvort minna áfengi eða ódýrari tegundir. 17. ágúst 2010 06:00
Lögreglan stöðvaði bruggframleiðslu á Akureyri Lögreglan á Akureyri stöðvaði bruggfarmleiðslu í einbýlishúsi í bænum í gær og lagði hald brugg og búnað. 7. september 2010 07:41
Áfengisverðið hefur áhrif á vísitölu og vínmenningu Verð á áfengi hefur hækkað mikið á síðustu árum. Alþingi samþykkti í fyrra breytingar á áfengisgjöldum, sem gerðu það að verkum að gjöldin hækkuðu um rúm fjörutíu prósent á tólf mánuðum. 14. ágúst 2010 09:15
Skattpíndur sopi Það er orðið ljóst að ríkisstjórnin gekk of langt með gífurlegum hækkunum á sköttum á áfenga drykki í fyrra. Niðurstaðan hefur orðið sú sem ýmsir spáðu; sala áfengis í ÁTVR hefur minnkað og þannig hefur tekjustofninn sem ríkisstjórnin hugðist skattpína dregizt saman. 16. ágúst 2010 06:00
Bændur handteknir fyrir brugg Tveir bændur á sjötugsaldri voru handteknir í Hrunamannahreppi í gær vegna umfangsmikillar landaframleiðslu. Við leit á sveitabænum fundust um 800 lítrar af gambra og 100 lítrar af landa sem lögreglan segir 35% að styrkleika. Að auki fundust mikið magn tækja og tóla sem nauðsynleg eru til landaframleiðslu. 21. júlí 2010 16:19