Innlent

Skar mann á háls með brotinni bjórkrús

Maðurinn notaði brotna bjórkrús til að veita öðrum manni alvarlega áverka.
Maðurinn notaði brotna bjórkrús til að veita öðrum manni alvarlega áverka.

Rúmlega tvítugur karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til næstkomandi föstudags eftir að hann skar annan mann á háls með brotinni bjórkrús um helgina.

Atvikið átti sér stað í heimahúsi við Mánagötu í Norðurmýri í Reykjavík. Ekki er ljóst hver ástæða árásarinnar var, en mennirnir voru tveir í húsnæðinu og áfengi hafði verið haft um hönd.

Sá sem fyrir árásinni varð fékk svöðusár á hálsinn og var fluttur á Landspítalann þar sem gert var að sárum hans. Hann var ekki talinn í lífshættu og hefur nú verið útskrifaður af spítalanum. Árásarmaðurinn var handtekinn annars staðar í borginni.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×