Reykjavíkurflugvelli lokað í sparnaðarskyni 4. apríl 2010 11:58
Reykjavíkurflugvöllur er lokaður og allt flug til og frá vellinum er bannað í dag og er þetta gert í sparnaðarskyni. Flugvöllurinn verður þó opnaður í neyðartilvikum. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Flugstoða, segir að Flugstoðir hafi þurft að finna leiðir til að spara þegar Samgönguráðuneytið ákvað að skera niður framlög til fyrirtækisins á síðasta ári. Því hafi verið ákveðið að minnka þjónustustig á flugvöllum og ein aðgerð í þeirri skerðingu var að loka Reykjavíkuflugvelli. Hún segir að í neyðartilfellum verði flugvöllurinn hins vegar opnaður, eins og til að greiða fyrir sjúkra- og neyðarflugi. Einnig sé hægt að opna flugvöllinn gegn gjaldi og þannig geti sterkefnaðir áhugaflugmenn nýtt sér það vilji þeir fljúga í dag. Ekkert áætlanaflug er innanlands í dag hjá Flugfélagi Íslands en að sögn Árna Gunnarssonar, framkvæmdastjóra flugfélagsins, eru þrír dagar á ári sem ekki er flogið, en um er að ræða páskadag, jóladag og nýársdag. Að sögn Hjördísar Guðmundsdóttur hafði sú staðreynd nokkra þýðingu þegar tekin var ákvörðun um að loka Reykjavíkurflugvelli, enda sé tekið mið af flugumferð þegar ákvarðanir um lokanir eru teknar. Hún segir að þetta sé engin óskastaða, vissulega væri heppilegra ef flugvöllurinn væri opinn, en lokunin sé hins vegar nauðsynleg sparnaðaraðgerð. Þrjá flugumferðarstjóra þarf til að halda uppi flugstjórnarþjónustu á Reykjavíkurflugvelli, en launakostnaður þeirra er meðal þess sem sparast með lokun flugvallarins í dag. Flugmenn í netheimum hafa lýst yfir óánægju með lokun flugvallarins, en skiptar skoðanir eru um hvort þörf sé á þremur flugumferðarstjórum á vakt. Hjördís segir að slíkt sé í samræmi við þær reglur sem gildi um flugumferð á Reykjavíkurflugvelli.
Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent Lögreglan leitar þessara manna Innlent Fleiri fréttir Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent