Innlent

Ákærður fyrir vopnalagabrot og að hóta lögreglumanni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd/ GVA.
Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd/ GVA.
Þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa haft í eigu sinni táragasbrúsa og í vörslum sínum stóran veiðihníf þann 7. janúar í fyrra.

Þá er maðurinn grunaður um að hafa hótað lögreglumanni við skyldustörf ofbeldi í lögreglubifreið á leið frá Nönnugötu að lögreglustöðinni við Hverfisgötu.

Málið gegn manninum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×