Innlent

Kennslu í ritmáli ábótavant

Í framhaldsskólum skortir á kennslu í rituðu máli að mati nemenda. Þeir telja sig vanbúna þegar kemur í háskóla. Mikill munur á undirbúningi fyrir háskólanám eftir skólum. Nemendur MA og MR ánægðastir.
Í framhaldsskólum skortir á kennslu í rituðu máli að mati nemenda. Þeir telja sig vanbúna þegar kemur í háskóla. Mikill munur á undirbúningi fyrir háskólanám eftir skólum. Nemendur MA og MR ánægðastir.

Tæpur þriðjungur nemenda í Háskóla Íslands (HÍ) telur sig vanbúinn að skrifa ritgerðir eða skýrslur þegar í HÍ er komið. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem unnin var í HÍ.

Mikill meirihluti, eða 71 prósent, telur að efla þurfi þjálfun í gagnrýnni hugsun og rökræðu í framhaldsskólunum. Róbert Haraldsson, formaður kennslumálanefndar HÍ og einn höfunda skýrslunnar, segir það kannski skýrast af tíðarandanum, hrunið og skortur á gagnrýninni hugsun í tengslum við það liti skoðanir nemendanna.

Könnunin sýnir að mikill munur er á afstöðu nemenda til þess undirbúnings sem framhaldsskólinn veitti þeim fyrir háskólanám, eftir því í hvaða skóla þeir stunduðu nám. Nemendur Menntaskólans á Akureyri (MA) eru ánægðastir með skólann sinn; 98 prósent þeirra töldu undirbúninginn góðan. Um 93 prósent nemenda Menntaskólans í Reykjavík (MR) eru sama sinnis og ríflega 86 prósent nemenda Menntaskólans í Hamrahlíð.

Minnst er ánægjan í Fjölbrautaskólunum í Vestmannaeyjum, Garðabæ og á Suðurnesjum; frá 29 prósentum suður með sjó, í 38 prósent í Eyjum. Rétt er að taka fram að mismargir eru að baki þessum tölum og úrtakið stundum lítið; aðeins 21 nemandi úr Vestmannaeyjum svaraði, svo dæmi sé tekið.

Róbert segir skýrsluna einnig sýna að lítil skörun sé á milli skólastiganna, ekki sé verið að kenna sömu hlutina á framhalds- og háskólastigi. Þó ber að geta þess að nemendur MR, MA og Menntaskólans á Laugarvatni skera sig úr, 30 til 36 prósent þeirra telja of mikið endurtekið á fyrsta ári í HÍ.

Róbert segir að á heildina litið komi framhaldsskólarnir nokkuð vel út úr viðhorfskönnuninni. Hann segir að í haust verði gerð námsgengiskönnun, þar sem árangur nemenda HÍ og brottfall eftir skólum verður kannað. Slík könnun sýni betur en viðhorfskönnun hver sé staða framhaldsskólanna.- kóp / sjá síðu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×