Innlent

Fá 208 milljóna króna sekt fyrir skattalagabrot

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mennirnir ráku jarðvinnufélagið Jarðvélar. Mynd/ Vilhelm.
Mennirnir ráku jarðvinnufélagið Jarðvélar. Mynd/ Vilhelm.
Tveir karlmenn, Karl Stefán Hannesson og Vilhjálmur Kristinn Eyjólfsson, hafa verið dæmdir í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða samtals 208 milljónir í sekt til ríkissjóðs fyrir skattalagabrot. Samkvæmt dómsorði þurfa mennirnir að sæta fangelsi í sex mánuði ef þeir greiða ekki sektina innan fjögurra vikna.

Mennirnir ráku verktakafyrirtækið Jarðvélar. Þeir voru dæmdir fyrir að standa ekki skil á 26 milljóna króna virðisaukaskattsgreiðslum og 78 milljóna króna staðgreiðslu opinberra gjalda sem þeir áttu að greiða samkvæmt lögum.

Mennirnir neituðu báðir sök. Karl Stefán bar fyrir sig að hann hafi einungis haft með verklegar framkvæmdir að gera hjá félaginu.Hann hafi ekki komið að ákvarðanatöku varðandi fjármál félagsins. Þá hafi hann verið óvinnufær vegna veikinda. Vilhjálmur Kristinn sagði fyrir dómi að hann hafi fullnægt skyldum sínum sem stjórnarformaður félagsins og gert ráðstafanir til þess að vangoldin opinber gjöld félagsins yrðu gerð upp. Þá hafi hann ekki haft yfirsýn yfir þau gjöld sem félagið hafi átt að standa skil á.

Vilhjálmur Kristinn var skráður stjórnarformaður fyrirtækisins á umræddum tíma og Karl Stefán skráður framkvæmdastjóri. Þeir munu hvor um sig þurfa að greiða 104 milljónir í sekt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×