„Þetta er búið að vera langt og erfitt stríð“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 5. september 2010 12:20 Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
Erlend fjárfesting bíður á meðan Icesave-deilan er óleyst, en íslenska samninganefndin undir forystu Lee Buchheits hefur lokið störfum í bili og er hann á leið heim til Bandaríkjanna. Engir frekari samningafundir hafa verið ákveðir með Bretum og Hollendingum í Icesave-deilunni, en íslenska samninganefndin undir forystu bandaríska lögmannsins Lee Buchheits fundaði í Hollandi með þjóðunum bæði á fimmtudag og föstudag án nokkurrar niðurstöðu. Buchheit, sem er lögmaður og sérfræðingur í samningum og málefnum skuldsettra þjóðríkja og hefur m.a verið gistiprófessor við Duke-háskóla, er á leið heim til Bandaríkjanna þar sem hann býr og starfar. Ljóst er að ekki er lengur samstaða meðal stjórnar og stjórnarandstöðu um störf samninganefndarinnar því Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur opinberlega gagnrýnt samningaferlið á þessu stigi málsins, en hann studdi nefndina áður. Geturðu útskýrt fyrir okkur þann fasa sem málið fer í eftir að við sendum þetta svar til ESA, það eru nokkrir dagar í það að við sendum ESA svar eins. Hvað gerist eftir það? „Þá væntanlega tekur ESA við því svari og metur framhaldið og þá er allt eins líklegt að málið sé komið í hinn formlega feril hjá eftirlitsstofnuninni, en hún gaf það skýrt til kynna að ef lausn fyndist á deilunni myndi hún endurskoða það gaf til kynna að málið yrði látið niður falla en út í þetta ætla ég ekki að fara á þessu stigi málsins," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. En ef við svörum þessu af fullri hörku og segjum að við berum ekki ábyrgð á þessu. Fer þá málið ekki fyrir EFTA-dómstólinn sem tekur sex mánuði til að dæma um lagaskylduna? „Það er talsverður ferill áður en að því kemur. Þ.e.a.s ESA myndi bregðast við okkar svari, senda rökstutt álit eftir tvo mánuði, við fáum aftur tíma til að bregðast við því. Ef við erum ósammála niðurstöðunni og andmælum henni enn að þeim tíma loknum þá tekur ESA ákvörðun um það hvort málið er sent til dómstólsins eða ekki." Ertu ekki orðinn þreyttur á þessu máli? „Jú, ég get viðurkennt það. Þetta er búið að vera langt og erfitt stríð og það þarf að finnast lausn á þessu. Menn mega ekki horfa framhjá því. Það er ekki eins og menn vilji standa í stríðinu stríðsins vegna," segir Steingrímur. Hann segir að málið hafi þvælst fyrir og verið veggur gagnvart því að íslensk fyrirtæki komist á erlenda fjármálamarkaði. Í þessu samhengi má rifja upp að Fjárfestingarbanki Evrópu neitaði Orkuveitu Reykjavíkur um framkvæmdalán fyrr í sumar á þeirri forsendu að málið væri óleyst.
Tengdar fréttir ESB og Icesave ekki fyrirstaða Ögmundur Jónasson kemur á nýjan leik inn í ríkisstjórnina og tekur við embættum dómsmála-, mannréttinda-, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. „Ég byggi á starfi forvera minna í starfi og alls þess starfsfólks sem vinnur verkin í þessum ráðuneytum,“ segir Ögmundur. 3. september 2010 03:45 Fundað um Icesave í Hollandi Samninganefndir Íslendinga, Breta og Hollendinga hittust í Hollandi í dag til að ræða Icesave-málið. Rósa Björk Brynjólfsdóttir upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins segir í samtali við Reuters að til standi að funda í dag og á morgun. 2. september 2010 14:25 Fundað um Icesave í dag Viðræðunefndir Íslands, Bretlands og Hollands munu eiga fundi í Hollandi um Icesave-málefni í dag og á morgun samkvæmt tilkynningu sem finna má á vef fjármálaráðuneytisins. 1. september 2010 16:15 Segir tímann vinna með Íslendingum í Icesave-deilunni Tíminn vinnur með Íslendingum í Icesave-málinu, segir fyrrverandi yfirlögfræðingur hjá EFTA. Málsmeðferð fyrir EFTA-dómstólnum er sjaldan meiri en 6 til 7 mánuðir, samkvæmt athugun á vef dómstólsins, eða minna en helmingurinn af þeim tíma sem liðinn er síðan fyrst var samið um Icesave. 31. ágúst 2010 18:30 Skuldin vegna Icesave greidd að verulegum hluta á næsta ári Íslenska sendinefndin hefur í dag reynt að greiða úr Icesave-deilunni við Breta og Hollendinga. Fjármálaráðherra segir að hægt verði að greiða verulegan hluta Icesave-skuldarinnar á fyrri hluta næsta árs. 3. september 2010 19:30 „Ég óttast ekki dómstólaleiðina“ Nýr innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, sem hætti á sínum tíma sem heilbrigðisráðherra vegna andstöðu við Icesave-málið er nú bjartsýnn á að farsæl niðurstaða fáist í málinu. Samningaviðræður standa yfir í Hollandi. 3. september 2010 12:15 Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Fleiri fréttir Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Sjá meira
ESB og Icesave ekki fyrirstaða Ögmundur Jónasson kemur á nýjan leik inn í ríkisstjórnina og tekur við embættum dómsmála-, mannréttinda-, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. „Ég byggi á starfi forvera minna í starfi og alls þess starfsfólks sem vinnur verkin í þessum ráðuneytum,“ segir Ögmundur. 3. september 2010 03:45
Fundað um Icesave í Hollandi Samninganefndir Íslendinga, Breta og Hollendinga hittust í Hollandi í dag til að ræða Icesave-málið. Rósa Björk Brynjólfsdóttir upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins segir í samtali við Reuters að til standi að funda í dag og á morgun. 2. september 2010 14:25
Fundað um Icesave í dag Viðræðunefndir Íslands, Bretlands og Hollands munu eiga fundi í Hollandi um Icesave-málefni í dag og á morgun samkvæmt tilkynningu sem finna má á vef fjármálaráðuneytisins. 1. september 2010 16:15
Segir tímann vinna með Íslendingum í Icesave-deilunni Tíminn vinnur með Íslendingum í Icesave-málinu, segir fyrrverandi yfirlögfræðingur hjá EFTA. Málsmeðferð fyrir EFTA-dómstólnum er sjaldan meiri en 6 til 7 mánuðir, samkvæmt athugun á vef dómstólsins, eða minna en helmingurinn af þeim tíma sem liðinn er síðan fyrst var samið um Icesave. 31. ágúst 2010 18:30
Skuldin vegna Icesave greidd að verulegum hluta á næsta ári Íslenska sendinefndin hefur í dag reynt að greiða úr Icesave-deilunni við Breta og Hollendinga. Fjármálaráðherra segir að hægt verði að greiða verulegan hluta Icesave-skuldarinnar á fyrri hluta næsta árs. 3. september 2010 19:30
„Ég óttast ekki dómstólaleiðina“ Nýr innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, sem hætti á sínum tíma sem heilbrigðisráðherra vegna andstöðu við Icesave-málið er nú bjartsýnn á að farsæl niðurstaða fáist í málinu. Samningaviðræður standa yfir í Hollandi. 3. september 2010 12:15