Innlent

Bjarni einn í framboði

Enn bendir ekkert til þess að nokkur Sjálfstæðismaður hyggist etja kappi við Bjarna Benediktsson um formennsku í flokknum nú þegar fáeinar vikur eru í landsfund. Tvær konur renna hins vegar hýru auga til varaformannsembættisins.

Sjálfstæðisflokkurinn er í ákveðinni tilvistarkreppu. Honum er helst allra flokka kennt um efnahagshrunið og kom ekki vel út úr sveitarstjórnarkosningunum síðustu helgi.

Ólöf Nordal er sú eina sem hefur lýst yfir framboði til varaformanns. Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi borgarstjóri, hefur sagt að hún íhugi að bjóða sig fram. Enginn hefur enn gefið kost á sér í formanninn.

Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttalögmaður, segir orðið tímabært að breyta til í forystunni. „Ég hef ekki legið á þeirri skoðun minni að jafn ágætur og formaðurinn er hefur hann skaðast mjög af þeirri umræðu í sambandi við viðskipti sem hann tengist og hefur ekki náð að hreinsa sig af þeim."

Hann nefnir Kristján Þór Júlíusson á Akureyri eða Árna Sigfússon bæjarstjóra í Reykjanesbæ sem mögulega kosti. „Síðan eru margir hrifnir af þeim valkosti að fyrrverandi formaður, Þorsteinn Pálsson, eigi comeback. Það væri mjög sterkur leikur, en ég held að Bjarni átti sig á því að hann er ekki að höndla þetta," segir Sveinn Andri.

Þorsteinn Pálsson aftók með öllu í samtali við fréttastofu að hann stefndi á formanninn. Hvorki náðist í Árna Sigfússon eða Kristján Þór við vinnslu fréttarinnar.

Þó gætu fleiri gefið kost á sér á fundinum sjálfum, því enginn formlegur framboðsfrestur er til embættanna.

„Allir landsfundarfulltrúar eru formlega í framboði og geta boðið fram krafta sína á fundinum sjálfum þegar hann er hafinn," segir Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×