Bjarni einn í framboði 6. júní 2010 19:12
Enn bendir ekkert til þess að nokkur Sjálfstæðismaður hyggist etja kappi við Bjarna Benediktsson um formennsku í flokknum nú þegar fáeinar vikur eru í landsfund. Tvær konur renna hins vegar hýru auga til varaformannsembættisins. Sjálfstæðisflokkurinn er í ákveðinni tilvistarkreppu. Honum er helst allra flokka kennt um efnahagshrunið og kom ekki vel út úr sveitarstjórnarkosningunum síðustu helgi. Ólöf Nordal er sú eina sem hefur lýst yfir framboði til varaformanns. Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi borgarstjóri, hefur sagt að hún íhugi að bjóða sig fram. Enginn hefur enn gefið kost á sér í formanninn. Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttalögmaður, segir orðið tímabært að breyta til í forystunni. „Ég hef ekki legið á þeirri skoðun minni að jafn ágætur og formaðurinn er hefur hann skaðast mjög af þeirri umræðu í sambandi við viðskipti sem hann tengist og hefur ekki náð að hreinsa sig af þeim." Hann nefnir Kristján Þór Júlíusson á Akureyri eða Árna Sigfússon bæjarstjóra í Reykjanesbæ sem mögulega kosti. „Síðan eru margir hrifnir af þeim valkosti að fyrrverandi formaður, Þorsteinn Pálsson, eigi comeback. Það væri mjög sterkur leikur, en ég held að Bjarni átti sig á því að hann er ekki að höndla þetta," segir Sveinn Andri. Þorsteinn Pálsson aftók með öllu í samtali við fréttastofu að hann stefndi á formanninn. Hvorki náðist í Árna Sigfússon eða Kristján Þór við vinnslu fréttarinnar. Þó gætu fleiri gefið kost á sér á fundinum sjálfum, því enginn formlegur framboðsfrestur er til embættanna. „Allir landsfundarfulltrúar eru formlega í framboði og geta boðið fram krafta sína á fundinum sjálfum þegar hann er hafinn," segir Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Sjá meira