Einn íslenskur fangi fluttur inn fyrir hvern sem fer utan 7. júlí 2010 06:45 Refsingar fimm litháískra mansalsmanna, sem Hæstiréttur dæmdi nýverið í fjögurra og fimm ára fangelsi, falla innan þess ramma að beiðni verði send héðan um að þeir afpláni í heimalandinu.
Sex erlendir fangar hafa á undanförnum tveimur árum verið fluttir úr fangelsum hér til heimalanda sinna, Litháens og Hollands, til að ljúka afplánun þar. Á sama tíma hafa jafnmargir íslenskir brotamenn, sem setið hafa í fangelsum erlendis, verið fluttir hingað til lands til að ljúka afplánun sinni hér. Þá er í vinnslu mál varðandi brottflutning hollensks brotamanns héðan til heimalandsins. „Málsmeðferðartíminn í þeim ríkjum sem við höfum beðið um að taka við eigin borgurum er yfirleitt mjög langur," segir Haukur Guðmundsson, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu. „Frá því að við sendum til tiltekins ríkis beiðni þess efnis að það taki við eigin ríkisborgara, sem hefur verið dæmdur hér og sé hann fús til fararinnar, þá fer málið í ferli sem getur hæglega tekið sex mánuði í fyrstu atrennu. Sé dæmi tekið um mann sem hefur setið í allt að hálft ár í gæsluvarðhaldi, síðan verið dæmdur í tveggja ára fangelsi og losnar á reynslulausn sex mánuðum eftir uppkvaðningu dómsins, eru allar líkur á að við séum ekki búin að fá svar frá ríkinu þegar hann er kominn út. Niðurstaðan er sú að það er varla raunhæft að hefja brottflutningarferli fyrir styttri dóma en þá sem kveða á um þriggja til fjögurra ára fangelsisvist. Það eru ekkert óskaplega margir útlendingar sem eru að fá svo þunga dóma." Haukur segir að þessi langa málsmeðferð sé þó ekki algild. Til að mynda hafi litháísk yfirvöld brugðist mjög vel við í málum af þessu tagi en dómsmálaráðherrar Íslands og Litháens hafi gert með sér samkomulag um hraða málsmeðferð. Þá séu önnur aðildarríki Evrópuráðssamningsins þar sem þurfi að dæma upp dómana sem menn hafa hlotið hér á landi. Það sé ekki til þess fallið að flýta fyrir málshraðanum. „Svo eru flest þessara ríkja með alltof mikið af föngum fyrir og líta þess vegna varla á það sem forgangsmál í sinni stjórnsýslu að flytja menn frá útlöndum vegna brota sem þeir hafa framið erlendis." Við þetta bætist svo að vilji erlendu brotamennirnir ekki fara héðan, sem flestir vilja ekki, verði ferlið enn lengra því þá þurfi að byrja á að brottvísa þeim með löglegum hætti. Hins vegar vilji nær allir íslensku brotamennirnir koma heim og afplána hér. Reynsla undanfarinna ára sýni að flutningar fanga til heimalandsins geti ekki leyst nema sáralítið brot af vanda í fangelsismálum hér á landi. jss@frettabladid.is
Tengdar fréttir Burðardýr eiturlyfja héldu sig fá milljónir Par á þrítugsaldri gerði ráð fyrir að fá þrjár til fjórar milljónir fyrir að smygla tæpum 1,8 kílóum af kókaíni í þremur ferðatöskum hingað til lands. 7. júlí 2010 08:30 Seldu fíkniefni fyrir milljónir Tveir af mönnunum fimm sem ákærðir eru fyrir stórfellt fíkniefnasmygl frá Alicante á Spáni í mars og apríl eru einnig ákærðir að hafa staðið að sölu fíkniefna um nokkurt skeið fram í apríl síðastliðinn. Orri Freyr Gíslason er 7. júlí 2010 10:15 Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira
Burðardýr eiturlyfja héldu sig fá milljónir Par á þrítugsaldri gerði ráð fyrir að fá þrjár til fjórar milljónir fyrir að smygla tæpum 1,8 kílóum af kókaíni í þremur ferðatöskum hingað til lands. 7. júlí 2010 08:30
Seldu fíkniefni fyrir milljónir Tveir af mönnunum fimm sem ákærðir eru fyrir stórfellt fíkniefnasmygl frá Alicante á Spáni í mars og apríl eru einnig ákærðir að hafa staðið að sölu fíkniefna um nokkurt skeið fram í apríl síðastliðinn. Orri Freyr Gíslason er 7. júlí 2010 10:15