Olíuboranir hafnar við Grænland 7. júlí 2010 18:45
Breskt olíufélag hóf í síðustu viku olíuboranir við vesturströnd Grænlands, norðan heimskautsbaugs, og notar bæði borpall og borskip. Olíufundur þar gæti haft umtalsverð áhrif hérlendis.Umsóknir frá þrettán olíufélögum í fyrrahaust sýna þann mikla áhuga sem er á olíuleit við Grænland um þessar mundir en Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna áætlaði fyrir tveimur árum að í kringum þetta næsta nágrannaland Íslands leyndust einhverjar mestu ófundnu olíulindir jarðar.Tíu ár eru frá því fyrsta og eina holan til þessa var boruð við strönd Grænlands en nú er breska félagið Cairn Energy byrjað á tveimur holum. Þær eru báðar norðan heimsskautsbaugs, í hafinu norðvestur af höfuðstaðnum Nuuk, um 175 kílómetra frá Diskó-eyju.Þarna er hafsdýpið 300 til 500 metrar en olíuborpallurinn Stena Don borar aðra holuna, og borskipið Stena Forth hina. Áætlað er að borunin standi yfir næstu tvo mánuði og að borað verði niður á allt að 4.200 metra dýpi. Olíuiðnaðurinn fylgist spenntur með árangrinum en meðal olíufélaga sem bíða í startholunum eru Exxon, Chevron og Statoil.Það er einnig vert fyrir Íslendinga að fylgjast grannt með því að olíufundur við vesturströnd Grænlands er líklegur til að hleypa lífi í olíuleit við austurströndina en þar eru aðstæður með þeim hætti að leit og vinnslu verður vart sinnt án þjónustu frá Íslandi. Dæmi um tekjur Íslendinga af slíkum umsvifum er þegar farin að sjást en í fyrrasumar sótti þriggja skipa olíurannsóknarleiðangur við Austur-Grænland þjónustu í Hafnarfjörð og hafði íslenskt hjálparskip, Valberg frá Vestmannaeyjum.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira