Ekki kosið um stækkun álvers samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu 5. febrúar 2010 18:45
Atkvæðagreiðsla um nýtt deiliskipulag sem felur í sér stækkun álversins í Straumsvík, fer ekki fram samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave. Alcan greiddi á sínum tíma fyrir gerð deiliskipulags, sem bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir lúta öðrum reglum er kostun á gerð aðalskipulags. Kosning um deiliskipulag vegna mögulegrar stækkunar álversins í Straumsvík, fer ekki fram samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave hinn 6. mars. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði segir að ekki hafi reynst vilji til að hafa atvkæðagreiðslurnar á sama tíma og þá sé tíminn fram til 6. mars einfaldlega of knappur. Bæjarráð Hafnarfjarðar fór yfir svar Alcans við erindi bæjarstjórnar vegna málsins á fundi bæjarráðs í gær. Lúðvík segir að ljúka þurfi ýmis konar pappírsvinnu varðandi deiliskipulagið áður en lengra verði haldið. Einhverjar breytingar kunni að verða gerðar frá því deiliskipulagi sem bæjarbúar greiddu atkvæði um 31. mars 2007. Þá var deiliskipulaginu og um leið stækkun álversins hafnað með naumum meirihluta atkvæða eða 50,3 prósentum en 49,3 prósent vildu að stækkunin yrði samþykkt. Aðeins munaði 88 atkvæðum á að deiliskipulagið yrði samþykkt. Lúðvík segist ekki geta spáð fyrir um hvenær atkvæðagreiðslan geti farið fram. Það verði einhvern tíma eftir 6. mars. En í október í fyrra höfðu stuðningsmenn stækkunar álversins safnað nægilega mörgum undirskriftum til að knýja fram nýja atkvæðagreiðslu. Alcan greiddi fyrir gerð deiliskipulagsins á sínum tíma. Það er heimilt samkvæmt lögum, en öðru máli gegnir um aðalskipulag, eins og fram kom í úrskurði umhverfisráðherra á dögunum, þegar ráðherra hafnaði aðalskipulagi hreppa sem liggja að Þjórsá og gerðu ráð fyrir byggingu virkjunar í neðri hluta árinnar.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira