Neteftirlit Vinnumálastofnunar skapar alvarlegt fordæmi 4. janúar 2010 19:10
Hæstaréttarlögmaður segir að úrskurður Persónuverndar um neteftirlit Vinnumálastofnunar hjá atvinnulausum skapi alvarlegt fordæmi og að gagnrýni í úrskurðinum á Vinnumálastofnun sé veikburða. Stjórn Persónuverndar breytti úrskurði stofnunarinnar. Til þess að geta þegið atvinnuleysisbætur þurfa umsækjendur um bætur að teljast vera í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvæði laganna hafa verið túlkuð á þann veg að þeim sem þiggja bætur sé ekki heimilt að dveljast erlendis hvort sem um styttra frí eða lengri dvöl er að ræða. Kona sem þáði bætur heimsótti venslafólk sitt í Svíþjóð og skráði sig inn á vef Vinnumálastofnunar þaðan, en það þurfa þeir sem þiggja bætur að gera reglulega. Henni var í kjölfarið synjað um bætur, þar sem hún var erlendis og uppfyllti ekki skilyrði um virka atvinnuleit. Vinnumálastofnun hafði komist að því að hún væri stödd erlendis með því að skoða ip-tölu tölvunnar sem konan skráð sig í gegnum. Konan kærði þetta til Persónuverndar sem komst að þeirri niðurstöðu í úrskurði sínum að þetta hefði Vinnumálastofnun verið heimilt. Í úrskurði sínum segir Persónuvernd að hún geri ekki athugasemd við eftirlit Vinnumálastofnunar en stofnunin telur rétt að Vinnumálastofnun láti þá sem þiggja bætur vita af eftirlitinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu var úrskurðinum breytt af stjórn Persónuverndar áður en hann var birtur, en í upphaflegum úrskurði kom fram mjög hörð gagnrýni á vinnubrögð Vinnumálastofnunar. Hæstaréttarlögmaður sem fréttastofa ræddi við segir að veikburða gagnrýni á vinnubrögð Vinnumálastofnunnar í úrskurðinum skapi alvarlegt fordæmi. Hann segir að þetta opni fyrir að ríkisstofnanir leyfi sér að láta vita af eftirlitinu eftir á. Hann segir það einnig gamaldags viðhorf að virk atvinnuleit geti ekki farið fram erlendis, enda fari flest öll atvinnuleit fram á netinu í dag.
Tengdar fréttir Vinnumálastofnun fylgist með IP-tölum atvinnulausra Persónuvernd hefur samþykkt að Vinnumálastofnun fylgist með IP-tölum þeirra sem staðfesta atvinnuleysisskráningu í gegnum heimasíðu stofnunarinnar. Þannig fylgist stofnunin með því hvort tilkynningar berast frá erlendum IP-tölum. 28. desember 2009 06:45 Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira
Vinnumálastofnun fylgist með IP-tölum atvinnulausra Persónuvernd hefur samþykkt að Vinnumálastofnun fylgist með IP-tölum þeirra sem staðfesta atvinnuleysisskráningu í gegnum heimasíðu stofnunarinnar. Þannig fylgist stofnunin með því hvort tilkynningar berast frá erlendum IP-tölum. 28. desember 2009 06:45