Innlent

Unglingar keyptu tóbak í 32% tilvika

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Unglingar gátu keypt tóbak í 32% tilvika þegar látið var á það reyna í nýrri könnun meðal sölustaða tóbaks í Hafnarfirði. Tveir unglingar úr 10. bekk fóru á sölustaði undir eftirliti starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar og reyndu að kaupa sígarettur. 7 sölustaðir seldu unglingunum tóbak af 22 mögulegum. Ekki var farið inn á staði með vínveitingaleyfi þar sem tóbak er selt.

Fovarnarfulltrúi Hafnafjarðar ætlar að senda sölustöðunum sem seldu börnunum tóbak ábendingu. Hann segir að búast megi við því að þeir staðir sem seldu börnum tóbak fái áminningu eins og kveður á um í lögum um tóbaksvarnir.

Í fréttatilkynningu frá forvarnarfulltrúanum segir hann að síðustu misseri hafi söluaðilar sett sér stöðugt skýrari reglur sem tryggi að aldurstakmörk séu virt. Meirihluti sölustaða í Hafnarfirði hafi gert sérstakt samkomulag við forvarnarnefnd sem miði að því að leita allra leiða til að koma í veg fyrir sölu tóbaks til barna. Hann segir að niðurstaðan nú sé sú besta síðustu þrjú ár og má ætla að fjölgun kannana haldi söluaðilum betur við efnið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×