Innlent

Segja RÚV siðferðislega gjaldþrota

RÚV. Mynd úr safni.
RÚV. Mynd úr safni.

Stjórn Félags íslenskra leikara (FÍL) lýsir áhyggjum sínum yfir þróun mála hjá Ríkisútvarpinu í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér í dag. Þar segir að skyldur RÚV við íslenskan almenning séu ríkar en RÚV sé orðið siðferðislega gjaldþrota. Þá vill félagið að ráðherra dragi ofh-væðingu ríkisútvarpsins til baka.

Þá segir ennfremur að þjónusta RÚV við almenning snúist um að gera íslenskan veruleika sýnilegan og skiljanlegan að mati Félags íslenskra leikara.

Svo segir orðrétt: „Það er því hlutverk stofnunarinnar að miðla og afla hlutlægra upplýsinga um þau mál sem skipta íslenskt samfélag máli, hvort sem þau snúa að þjóðfélagsmálum, dægurmálum, menntun eða listum. Skylda RÚV er við íslenskt lýðræðissamfélag sem og íslenskt menningarsamfélag. Niðurskurður á RÚV undanfarna mánuði er staðfesting á siðferðilegu gjaldþroti RÚV gagnvart þessum skyldum sínum.

Það er í hæsta máta óeðlilegt við þær aðstæður sem nú ríkja að opin og lýðræðisleg stjórnsýsla nái ekki yfir stofnun sem RÚV heldur geðþótti pólitískt skipaðs útvarpsstjóra. Slíkt getur ekki annað en grafið undan því trausti sem RÚV þarf að njóta í samfélaginu.

FÍL skorar því á ráðherra að gera alvöru úr því að draga Ohf-væðingu RÚV tilbaka og stokka upp í yfirstjórn stofnunarinnar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×