Hurðum og gluggum stolið í tugatali 24. mars 2010 05:45 Verktakinn Halldór stendur hér við húsin sem í vantar glugga og hurðir. Fréttablaðið/valli
Hátt í fimmtíu útidyrahurðum og gluggum er talið hafa verið stolið úr sex tveggja hæða íbúðum af níu í raðhúsalengju sem Byggingarfélagið Kjölur hefur verið að reisa með hléum við Elliðavað í Norðlingaholti síðastliðin þrjú ár. Halldór Halldórsson, framkvæmdastjóri Kjalar, segir starfsmenn hafa tekið eftir stuldinum þegar þeir komu til starfa eftir vikufrí á mánudag. Hann segir nokkra hljóta að hafa verið að verki, þeir verið vel tækjum búnir og með flutningabíl til að koma farminum á brott. Stærstu gluggarnir eru um tvö til þrjú hundruð kíló á þyngd, en þeir eru sérpantaðir rammar með umgjörð og gleri í og pantaðir eftir máli frá Danmörku. Fjóra menn þurfti til að koma stærstu gluggunum fyrir og skrúfa þá í veggi húsanna, að sögn Halldórs. Gluggar og hurðir í húsin öll voru keypt í fyrra og kostuðu þrettán milljónir króna. Byggingarfélagið Kjölur var með framkvæmdalán frá Landsbankanum og Frjálsa fjárfestingarbankanum upp á 494 milljónir króna í lok árs 2007, þar af þriðjung í erlendri mynt. Halldór segir hafa verið samið við kröfuhafa um að koma húsunum í söluhæft ástand. Árni Þór Sigfússon, aðstoðaryfirlögregluþjónn á lögreglustöð 4, segir málið í rannsókn. Skoða þurfi marga þætti. Meðal annars hvort nágrannar hafi tekið eftir mannaferðum við húsin. - jab
Mest lesið „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Innlent Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Innlent Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu Innlent „Easy come, easy go“ Innlent Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Innlent Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Innlent Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Innlent Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Innlent Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Innlent Fleiri fréttir Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Hólavallagarður friðlýstur Gerir ráð fyrir að ljúka þingstörfum fyrir mánaðamót Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Tæpur helmingur ætlar að flytja aftur til Grindavíkur Kvikmyndaskólinn lifir og skólagjöld verða hóflegri „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Kvenréttindadagur: „Baráttan er ekki búin“ Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Leita ekki Sigríðar í dag Um helmingur Grindvíkinga segist líklega ætla að snúa aftur Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu „Easy come, easy go“ Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Áframhaldandi landris í Svartsengi Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið Sjá meira