Kanna svigrúm til niðurfærslu skulda 24. mars 2010 06:30 Helgi Hjörvar. Mynd/Arnþór Birkisson
Efnahags- og skattanefnd mun óska upplýsinga frá bönkum um hvert svigrúm fyrir niðurfærslu skulda almennings sé. Hingað til hafa bankarnir neitað að veita þessar upplýsingar og borið við bankaleynd. Nú á að láta reyna á þetta til fulls. Nefndin tók málið fyrir á fundi sínum í gær og ljóst er að þverpólitísk samstaða er um það. Sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu og fulltrúi í Hagsmunasamtökum heimilanna voru kallaðir fyrir nefndina. „Það er fáránlegt að Alþingi hafi ekki í höndum greinargóðar upplýsingar um svigrúm bankanna til afskrifta á skuldum heimila," segir Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður nefndarinnar. Hann segir grundvallaratriði að þingið hafi þessar upplýsingar. „Það er alveg ljóst að svigrúmið er umtalsvert en mikilvægt er að fyrir liggi hve mikið það er, hvernig því verði ráðstafað og ekki síst að svigrúmið verði örugglega allt notað í þágu heimilanna." Ögmundur Jónasson situr í nefndinni fyrir hönd Vinstri grænna. Hann segir að þrýsta verði á banka og stofnanir um þessar upplýsingar. Allir beri ugg í brjósti vegna þess gríðarlega vanda sem steðji að heimilum og fyrirtækjum. „Þar má ekki gleyma því að eini aðilinn sem hefur verið varinn í þjóðfélaginu er lánveitandinn og það er fráleitt annað en að hann þurfi að axla einhvern hluta af hruninu." Tryggvi Þór Herbertsson, einn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í nefndinni, segist vonast til að þetta verði heimilum til hagsbóta. Skort hafi á aðgerðir til að koma í veg fyrir að heimili fari í nauðasamninga. „Við leggjum upp með það núna að fara í almennar aðgerðir." Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, situr í nefndinni. Hann segist fagna því sérstaklega að sátt sé að nást um að mæta skuldavanda heimilanna. „Það eru sérstök tíðindi að þingnefnd taki frumkvæðið. Við höfum beint þessu til ríkisstjórnarinnar, en samstarf þar hefur verið af skornum skammti." Þór Saari, fulltrúi Hreyfingarinnar, segir vilja fyrir því í þinginu núna að taka á málinu með afgerandi hætti. Sjálfur vill hann sjá lækkun höfuðstóls miðað við vísitölu í janúar 2008.- kóp
Mest lesið „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Innlent Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Innlent Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Innlent Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu Innlent Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Innlent „Easy come, easy go“ Innlent Gátu loks yfirheyrt konuna Innlent Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Innlent Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Innlent Fleiri fréttir Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Skúringabúnaðurinn laus af segulómtækinu en ástand þess óljóst Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Gátu loks yfirheyrt konuna Fækka hefðbundnum kennslustundum um þriðjung „Þetta er verra hjá strákunum heldur en hjá stelpunum“ Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Hólavallagarður friðlýstur Gerir ráð fyrir að ljúka þingstörfum fyrir mánaðamót Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Tæpur helmingur ætlar að flytja aftur til Grindavíkur Kvikmyndaskólinn lifir og skólagjöld verða hóflegri „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Kvenréttindadagur: „Baráttan er ekki búin“ Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Leita ekki Sigríðar í dag Um helmingur Grindvíkinga segist líklega ætla að snúa aftur Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu „Easy come, easy go“ Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Áframhaldandi landris í Svartsengi Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út Sjá meira