Innlent

Óvenju mikið um sjúkraflutninga

Slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu sinntu rúmlega sjötíu sjúkraflutningum í gær, sem nálgast að vera met á einum degi. Í fyrradag var líka óvenju mikið um flutninga, eða 68, en á meðal degi flytja sjúkraflutningamenn 40 til 45 manns.

Í flestum tilvikunum í gær og í fyrradag, var verið að flytja sjúklinga á milli Landsspítalanna í Fossvogi og við Hringbraut.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×