Þeir sem frystu lánin verða af vaxtabótum 24. mars 2010 16:18 Arion banki reiknar ekki áfallna vexti.
Þeir einstaklingar sem hafa fryst íbúðalánin hjá Arion banka vegna erfiðrar fjárhagsstöðu fá engar vaxtabætur frá ríkinu í ár þar sem bankinn reiknar ekki og gefur ekki upp áfallna vexti af láninu. Enn er beðið eftir svari frá Landsbankanum hvort slíkt hið sama sé uppi á teningnum. Samkvæmt upplýsingum frá Arion banka verða einstaklingar þó ekki alfarið af vaxtabótunum heldur frestast greiðslan þar til lánið fer úr frystingu, hinir sömu geta ekki búist við vaxtabótunum af lánunum í ágúst. Arion banki svaraði fyrirspurn Vísis um málið sem var svohljóðandi: „Til að vextir geti myndað stofn til vaxtabóta verða þeir að vera gjaldfallnir. Þegar skuldari óskar eftir frystingu láns frestast ekki bara afborgun af höfuðstól heldur líka greiðsla vaxta. Þegar lánið fer síðan aftur í eðlilegt niðurgreiðsluferli eru áfallnir vextir venjulega gjaldfelldir og þeim bætt við höfuðstól lánsins. Þannig mynda þeir stofn til vaxtabóta á því ári sem gjaldfellingin á sér stað. Til að vextir af láni, sem var í frystingu um síðustu áramót gætu myndað stofn til vaxtabóta á síðasta ári hefði þurft að gjaldfella þá í desemberlok og bæta þeim við höfuðstól lánsins. Skjólstæðingur endurskoðandans verður því ekki af vaxtabótunum heldur ættu þær einungis að frestast. Þetta þýðir að það er ekki hægt að fá vaxtabætur af vöxtum fyrr en eftir að þeir eru greiddir." Þeir sem eru með fryst íbúðarlán hjá Íbúðarlánasjóði fá hinsvegar vaxtabætur þó svo þeir greiði ekki af láninu nú. Þess skal þó geta að Íbúðarlánasjóður getur fryst lán í allt að þrjú ár á meðan bankarnir frysta þau í mest 12 mánuði. Vextir af frystingu bankanna gjaldfalla því á 12 mánaða fresti, er hugsanlega bætt við höfuðstólinn og mynda stofn til vaxtabóta á því ári sem þeir gjaldfalla. Endurskoðandi sem Vísir ræddi við sagði skjólstæðing sinn verða af 250 þúsund krónum í vaxtabætur vegna þess að hann er með íbúðarlán fryst hjá Arion banka en ekki íbúðarlánasjóði. Það setur fjármálastöðu skjólstæðingsins í talsvert uppnám enda munar um minna. Það skal hinsvegar áréttað að greiðslurnar skila sér eftir að lánin hafa verið tekin úr frystingu. Það er hinsvegar hámark á greiðslu vaxtabóta og því mögulegt að einhverjir fjármunir fari forgörðum vegna þess. Ekki náðist í forsvarsmenn Íslandsbanka til þess að fá staðfest hvort það sama gilti hjá þeim.
Mest lesið Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Innlent Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Innlent Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Fleiri fréttir Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Sjá meira