Innlent

Kveikt í ferðaklósettum við Esjuna

Brennandi klósett.
Brennandi klósett.

Kveikt var í ferðaklósettum við Esjuna í gærkvöldi en eldurinn var næstum slokknaður þegar slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu kom á vettvang.

Samkvæmt varðstjóra þá voru þetta lítil plastklósett sem fuðruðu upp á stuttum tíma.

Brennuvargarnir voru á bak og burt þegar slökkviliðið kom á vettvang um hálf tíu leytið í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×