Nox Medical fær Nýsköpunarverðlaunin í ár 24. mars 2010 11:30 Á myndinni eru Sveinbjörn Höskuldsson framkvæmdastjóri Nox Medical og iðnaðarráðherra.
Nox Medical hlaut Nýsköpunarverðlaun Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Útflutningsráðs árið 2010 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í morgun. Fyrirtækið var stofnað í júní 2006 með það að markmiði að hanna svefngreiningarbúnað sem hentaði jafnt börnum sem fullorðnum, en á þeim tíma var ekki til búnaður sem sérstaklega hafði verið hannaður með börn í huga. „Í umsögn valnefndar kemur fram að fyrirtækið hefur náð þeim árangri á skömmum tíma að þroskast frá engu öðru en hugviti og reynslu starfsmanna til arðbærs lækningavöruframleiðanda með vörur sem seldar eru á alþjóðamarkaði. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra afhenti Sveinbirni Höskuldssyni framkvæmdastjóra Nox Medical verðlaunin í morgun," segir í fréttatilkynningu. Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem hafa þótt skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu sem byggð er á rannsókna- og vísindastarfi og náð hefur árangri á markaði. „Nýsköpunarverðlaunin voru fyrst veitt árið 1994 en tilgangur þeirra er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu og rannsókna og þekkingaröflunar. Á meðal fyrirtækja sem hlotið hafa Nýsköpunarverðlaunin eru ORF Líftækni (2008), CCP (2005), Bláa lónið (2000) og Íslensk erfðagreining (1998)." Þá segir að við val á verðlaunahafa sé litið til þess hvort um sé að ræða nýtt sprotafyrirtæki, hvort það sé byggt á nýskapandi tækni og hugmynd og sé kröfuhart á þekkingu. „Þá er lagt mat á virðisauka afurða og hvort fyrirtækið hafi náð árangri á markaði. Metið er hvort líkur séu á að fyrirtækið haldi velli og hvort stjórnun nýsköpunar sé til eftirbreytni. Að lokum er metið hvort fyrirtækið sé hvatning fyrir aðra að feta sömu slóð."
Mest lesið Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Innlent Fleiri fréttir Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Sjá meira
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent