Meirihlutinn í Vesturbyggð sprunginn 24. mars 2010 20:59 Frá Patreksfirði. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Meirihlutinn í Vesturbyggð er sprunginn eftir að bæjarfulltrúinn Jón Hákon Ágústsson sagði sig úr úr Bæjarmálafélaginu Samstöðu sem hefur haft meirihluta í bæjarstjórn undanfarin fjögur ár. Samtaða fékk fjóra bæjarfulltrúa kjörna í kosningunum 2006 og Sjálfstæðisflokkurinn þrjá. Þetta gerir Jón Hákon vegna óleysanlegs ágreinings varðandi umsagnir í laxeldismálum í Arnarfirði. „Ég mun starfa áfram í bæjarstjórn og fylgja minni eigin sannfæringu við atkvæðagreiðslur út kjörtímabilið," segir Jón Hákon í yfirlýsingu. Hann segir að bæjarfulltrúar Samtöðu hafi ekki tekið til greina þær athugasemdir sem hagsmunaaðilar í Arnarfirði hafa sett fram varðandi umhverfismat og leyfi Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða á 200 tonna laxeldi. „Íbúar í Arnarfirði skiluðu inn undirskriftalista þar sem óskir þeirra um skilyrt leyfi til laxeldis voru ekki teknar til greina og lítilsvirtar af bæjarfulltrúum á 216. fundi bæjarstjórnar. Jafnframt var það bókað að það væri ekki þörf á umhverfismati til Skipulagsstofnunar varðandi umsögn á 3000 tonna laxeldi, þvert á vilja hagsmunaaðila. Þetta geri ég í fullu samráði við hluta kjósenda hér á Bíldudal og hef áfram fullan stuðning þeirra til áframhaldandi setu í bæjarstjórn," segir Jón Hákon. Vesturbyggð er sveitarfélag á sunnanverðum Vestfjörðum. Til Vesturbyggðar teljast byggðakjarnarnir Birkimelur á Barðaströnd, Bíldudalur og Patreksfjörður og sveitirnar Barðaströnd, Breiðavík, Hænuvík, Ketildalir, Látrar, Rauðisandur og Suðurfirðir.
Mest lesið Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Innlent Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Innlent Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Fleiri fréttir Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Sjá meira