Gjörningaveður á Suðurlandi 21. janúar 2010 03:00 veðurguðir í ham Það birti yfir Reykjanesbæ stundarkorn á meðan eldingunum laust niður.Víkurfréttir/hilmar Bragi
Mikið þrumuveður gerði á sunnanverðu landinu síðdegis í gær og var mörgum brugðið þegar eldingar lýstu reglulega upp himininn allt frá Eyrarbakka áleiðis í Borgarfjörð. „Þetta er sjaldgæft og enn sjaldgæfara að þetta blasi svona við úr borginni,“ segir Teitur Arason veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Hann segir eldingar oft myndast í skúraveðri á eftir kuldaskilum. Í fyrrinótt hafi kuldaskil einmitt farið yfir landið, og að þeim hafi fylgt kaldara loft og óstöðugt, sem myndaði skúrahríðir og þrumuveður. Teitur segir að ekki liggi fyrir strax um hversu margar eldingar hafi verið að ræða. Hann hafði hins vegar sjálfur séð minnst fimm þegar út um glugga Veðurstofunnar er Fréttablaðið ræddi við hann fyrir kvöldmat. Þrumuveðrið var á leið í norður og ekki talið útilokað að það myndi ná alla leið upp í Borgarfjörð. Í dag er gert ráð fyrir stormi á landinu og sterkum vindhviðum sem geta orðið allt að 40 metrar á sekúndu á verstu stöðum, til dæmis undir Hafnarfjalli. Búist er við að veðrið skelli á sunnanverðu landinu síðdegis og standi langt fram á kvöld. Mikil væta mun fylgja vindinum. - sh
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Fleiri fréttir Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Sjá meira