Innlent

Borga mörg hundruð milljónir í leigu en eiga autt húsnæði

Höskuldur Kári Schram skrifar

Á sama tíma og Reykjavíkurborg greiðir mörg hundruð milljónir króna á ári í leigu fyrir skrifstofuhúsnæði stendur húsnæði í eigu borgarinnar tómt og ónotað.

„Reykjavíkurborg tók fyrir nokkrum árum að leigu skrifstofuhúsnæði hér við Höfðatorg og borgar fyrir það tæpar sex hundruð milljónir króna á ári. Borgin á hins vegar fjölmargar fasteignir sem ekki eru í notkun," segir Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.

Þannig hefur skrifstofuhúsnæði við Tjarnargötu sem áður hýsti innri endurskoðun borgarinnar staðið tómt í meira en eitt ár.

Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir augljóst að þetta fyrirkomulag skili lítilli hagræðingu.

„Við sjáum hér að þetta húsnæði borgarinnar stendur autt á meðan verið er að leigja undir starfsemi borgarinnar í höfðatorgi. og ef við lítum hér yfir götuna að þá voru þar starfsmenn fjármálaskrifstofu á annarri hæð fluttir yfir í höfðatorg og leigt undir þá þar og ekkert nýtt hefur komið í staðinn inni í ráðhúsi og önnur hæðin stendur nú hálftóm," segir Sigrún Elsa.

Sigrún bendir á að húsnæðiskostnaður borgarinnar hafi aukist rúma fjóra milljarða á yfirstandandi kjörtímabili. Þannig hefur húsnæðiskostnaður menntasvið farið úr 16 prósent af heildarútgjöldum í 22 prósent.

„Við sjáum það þegar svo er komið og verið er að skera niður og ekki til endalaust fé til að setja í þessa málaflokka að þá þrengir það að innra starfi og þá þarf að skera þar meira niður."

Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokks, bendir á að Dagur B. Eggertsson, hafi í sinni borgarstjórnartíð skrifað undir 25 ára leigusamning vegna Höfðatorgs. Núverandi borgarstjórnarmeirihluti leiti nú leiða til að nýta það húsnæði sem best og ná fram hagræðingu með því móti.

Þá sé allur samanburður á húsnæðiskostnaði undafarinnar ára villandi vegna þeirra breytinga sem gerðar voru þegar eignarekstur borgarinnar var settur undir einn en við þær breytingar kom upp ýmis falinn kostnaður.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×