Sakar minnihlutann um að taka undir ávítta gagnrýni Ólafs F. 21. janúar 2010 21:42 Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir.
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, sakar minnihluta borgarstjórnar, Samfylkinguna og VG, um að taka óbeint undir málflutning borgarfulltrúans Ólafs F. Magnússonar, með því að sitja hjá þegar vantrauststillögu Ólafs var vísað frá á borgarstjórnarfundi í vikunni. Orðrétt skrifar Þorbjörg á blogg sitt sem finna má á Eyjan.is: „Minnihluti borgarstjórnar ákvað hins vegar að sitja hjá við afgreiðslu frávísunartillögunnar. Með því tók minnihlutinn óbeint undir ómálefnalegan rógburð Ólafs og datt þar með ofan í sama forarpytt." Eins og kunnugt er þá var Ólafur ávíttur fyrir níðvísu um Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra, sem hann flutti ásamt vantrauststillögu á hennar hendur og sakaði hana meðal annars um spillingu. Þegar tillögunni var vísað frá sátu borgarfulltrúar VG og Samfylkingarinnar hjá og vill Þorbjörg meina að þar með hafi þeir tekið undir þær sakir sem bornar voru á borgarstjórann í tillögunni. Og Þorbjörg skrifar: „Það að sitja hjá felur nefnilega í sér þegandi samþykki yfir vinnubrögðum Ólafs." Hún fullyrðir svo að sjálf hefði hún stutt tillögu um frávísun ef spjótin hefðu staðið á einhverjum úr minnihlutanum. Um hjásetu borgarfulltrúa segir Þorbjörg svo: „Eina orðið sem mér kemur í hug yfir slík vinnubrögð minnihlutans er skömm." Færsluna má lesa hér.
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira