Flotinn á leið á mótmælafund 21. janúar 2010 01:00 Vestmannaeyjahöfn Allir sem vettlingi geta valdið eru kallaðir á mótmælafund vegna boðaðra breytinga í sjávarútvegi. fréttablaðið/Óskar
Útgerðarmenn í Vestmannaeyjum hafa stefnt flota Eyjamanna til hafnar svo sjómenn geti tekið þátt í baráttufundi gegn fyrirhuguðum aðgerðum stjórnvalda í málefnum sjávarútvegsins sem haldinn verður í samkomuhúsinu Höllinni í kvöld. Fundurinn, sem ber yfirskriftina Fyrnum fyrningarleiðina, er hugsaður sem mótmælafundur gegn fyrningarleið í sjávarútvegi, útflutningsálagi og afnámi sjómannaafsláttar. Þar á að sýna stjórnvöldum hver hugur Vestmannaeyinga er til fyrirhugaðra breytinga í greininni og rökstyðja hvaða neikvæðu áhrif þær hafa á samfélög sem byggja allt sitt á sjávarútvegi. Fundarboðendur eru Sjómannafélagið Jötunn, Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi, Félag vélstjóra- og málmtæknimanna, Godthaab í Nöf, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja, Útvegsbændafélagið Heimaey og Vestmannaeyjabær. Elliði Vignisson bæjarstjóri segir að bæjarstjórn Vestmannaeyja hafi ályktað gegn fyrningarleið í sjávarútvegi og talið hana jafngilda aðför að atvinnulífi Vestmannaeyja og þar með byggð í Eyjum. „Vestmannaeyjabær tekur þátt í baráttufundinum vegna þess að samfélagið í Eyjum stendur eða fellur með sjávarútveginum. Allir íbúar eiga í raun allt sitt undir því hvernig þessari atvinnugrein og fyrirtækjum í henni vegnar. Við ætlum ekki að horfa þegjandi og aðgerðarlaus á velferð okkar skerta á þann máta sem nú er boðað.“ - shá
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira