Innlent

Lögreglan handtók strípaling í Elliðaárdalnum

SB skrifar
Maðurinn var handtekinn í gær og yfirheyrður. Síðan var honum sleppt.
Maðurinn var handtekinn í gær og yfirheyrður. Síðan var honum sleppt.
Maður á sextugsaldri beraði sig fyrir framan hóp ungra stúlka sem voru við leik í Elliðaárdalnum í gær. Lögreglan kom á vettvang og handtók manninn. Honum var sleppt eftir yfirheyrslur í gær.

Það var DV sem greindi fyrst frá málinu í gær og ræddi við Birgi Lúðvíksson, föður sextán ára stúlku, sem lék sér ásamt vinkonum sínum við fossinn í Elliðaárdalnum. Í fréttinni kemur fram að strípalingurinn eða flassarinn, eins og menn sem stunda hegðun af þessu tagi eru stundum kallaðir, hafi læðst að stúlkunum, berað sig, og fróað sér fyrir framan þær.

„Það fór gífurlegur óhugur um mig," sagði Birgir þegar hann fékk fréttirnar af því sem hafði gerst. Dóttir Birgis faldi sig bak við tré og hringdi í lögregluna sem mætti skömmu síðar á svæðið og handtók flassarann.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni barst tilkynning í gær um mann sem hegðaði sér ósæmilega í nágrenni við krakka sem voru að leik í Elliðaárdalnum. Maðurinn var handtekinn en sleppt síðar í gær eftir yfirheyrslur. Málið mun fara sína leið í kerfinu, sagði lögreglumaður á vakt í samtali við Vísi.

Ekki er óalgengt að fréttir berist af flössurum á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2005 bárust fréttir af manni í Fossvogi sem beraði sig fyrir framan unga krakka. Hann gekk undir nafninu Flautukarlinn því hann náði athygli þeirra með því að blístra. Árið 1987 fjallar Tíminn um flassara á Miklatúninu sem hafi berað sig fyrir framan tvær stúlkur - þrátt fyrir næturfrost.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×