Redknapp vill fá Eið Smára á láni - hættir hann við West Ham? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. janúar 2010 09:30 Eiður Smári Guðjohnsen. Mynd/AFP
Harry Redknapp, stjóri Tottenham, lýsti í gærkvöldi yfir áhuga sínum á að stela Eiði Smára Guðjohnsen af West Ham þegar allt leit út fyrir að íslenski landsliðsmaðurinn væri á leiðinni á Upton Park. Breskir fjölmiðlar fjalla um málið í morgun, The Independent segir að Redknapp sé að reyna allt til að ná í Eið Smára en bæði The Times og The Guardian eru meira á því að hann sé búinn að afskrifa íslenska landsliðsmanninn og búist við að hann fari í West Ham. „Ég er hrifinn af Eiði og hann er góður fótboltamaður. Við þyrftum ekkert að stela honum af West Ham því lán er bara lán. Ég talaði við umboðsmanninn hans til þess að forvitnast um hvernig samningurinn væri og það lítur út fyrir að Mónakó sé að borga stóran hluta af laununum hans," sagði Harry Redknapp við The Independent. „Umboðsmaðurinn hans sagði að Eiður væri á leiðinni til West Ham og ég gaf honum samband við stjórnarformanninn okkar. Launin koma mér ekkert við. Þetta væri góður lánssamningur, það er mikið framundan hjá okkur og hann gæti hjálpað okkur," sagði Redknapp. „Eiður getur spilað í mismunandi stöðum og það er hægt að stilla upp í mismunandi leikkerfi í kringum hann. Það væri gott að hafa hann innanborðs og mér fannst þetta lánstilboð líta vel út. Mér fannst þetta mjög áhugavert um leið og ég heyrði af því," sagði Redknapp. Eiður Smári fór í læknisskoðun á Upton Park í gær en Gianfranco Zola neitaði að tala um málið í gær sem The Independent telur að bendi til þess að Eiður sé á leiðinni til Tottenham en ekki til West Ham.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Sjá meira