Guðbjartur situr enn á skipulagi Ölfuss 5. nóvember 2010 11:37 Guðbjartur Hannesson.
Guðbjartur Hannesson, sem var settur umhverfisráðherra um skipulagsmál Ölfuss, eftir að Svandís Svavarsdóttir lýsti sig vanhæfa, hefur ekki enn staðfest aðalskipulag sveitarfélagsins. Ein vika er komin fram yfir þann tíma sem ráðamenn sveitarfélagsins telja stjórnsýslulög veita honum til að afgreiða málið.37 dagar eru nú liðnir frá því tilkynnt var að Guðbjartur hafi verið settur yfir málið eftir að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lýsti sig vanhæfa til að fjalla um það. Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Ölfuss, telur að samkvæmt stjórnsýslulögum sé eðlilegur tími ráðherra 30 dagar en ráðamenn sveitarfélagsins gagnrýndu í síðasta mánuði þann langa tíma sem það tók Svandísi að lýsa sig vanhæfa.Hálft ár var þá liðið frá því málið kom inn á borð umhverfisráðherra frá Skipulagsstofnun en það var þann 9. apríl í vor. Það var svo fyrst þann 28. september í haust, eða 172 dögum síðar, sem Svandís lýsti sig vanhæfa, - vegna ummæla sem hún hafði áður látið falla um Bitruvirkjun.Sigríður Lára Ásbergsdóttir, forseti bæjarstjórnar Ölfuss, hefur lýst undrun á því að það skyldi taka Svandísi svo langan tíma að komast að því að hún væri vanhæf enda væru nokkur ár frá því ummæli hennar um Bitruvirkjun féllu.Samkvæmt upplýsingum aðstoðarmanns Guðbjarts Hannessonar má búast við að hann afgreiði málið um miðjan nóvember. Þá verður liðið heilt ár frá því Sveitarfélagið Ölfus sendi það inn til lokaafgreiðslu Skipulagsstofnunar og staðfestingar umhverfisráðherra. Skipulagsstofnun sendi það tvívegis með athugasemdum til baka, í janúar og febrúar, áður en það var sent ráðherra til endanlegrar staðfestingar í aprílbyrjun, sem fyrr segir.Meðal verkefna sem ráðamenn Ölfuss segja að tefjist vegna þessa dráttar er breikkun Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Innlent Fleiri fréttir Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Sjá meira