Innlent

Fimmtán lög valin í forkeppni Eurovision

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hera Björk flutti sigurlagið í forkeppni Evróvision í fyrra. Mynd/ AFP.
Hera Björk flutti sigurlagið í forkeppni Evróvision í fyrra. Mynd/ AFP.
Fimmtán lög hafa verið valin til að taka þátt í forkeppni söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fer eftir áramót. Margir af þekktustu tónlistarmönnum þjóðarinnar hafa sent inn lög. Á meðal þeirra eru Hallgrímur Óskarsson, Jógvan Hansen og Vignir Snær Vigfússon Ragnar Hermannsson og Sigurjón Brink.

Þátttaka Jakobs Jóhannssonar vekur líka nokkra athygli. Jakob er alls ekki ókunnur þessari keppni en hann hefur hannað leikmynd fyrir forkeppnina síðustu tvö ár. Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem hann semur lag fyrir keppnina. „Það er mjög gaman að taka þátt í þessu hinu megin frá," segir Jakob í samtali við Vísi. Hann segir að lagið hafi verið í vinnslu í rúmt ár

Eðli málsins samkvæmt getur Jakob ekki unnið að gerð leikmyndarinnar í þetta skiptið. „Nú verð ég að gefa hitt frá mér. Ég má ekki koma nálægt keppninni neitt að öðru leyti," segir Jakob, sem fullyrðir að það sé passað vel upp á að menn sitji ekki beggja vegna borðsins.

Jakob er ekki búinn að ákveða hvern hann lætur syngja fyrir sig en segir að lagið henti bæði fyrir kvenmannsrödd og karlmannsrödd.

Eftir því sem fram kemur á fréttavef RÚV eru höfundar laganna fimmtán eftirtaldir.

Albert Guðmann Jónsson,

Arnar Ástráðsson,

Hallgrímur Óskarsson,

Haraldur Reynisson,

Ingvi Þór Kormáksson,

Jakob Jóhannsson,

Jógvan Hansen og Vignir Snær Vigfússon,

Jóhannes Kári Kristinsson,

María Björk Sverrisdóttir,

Matthías Stefánsson,

Orri Harðarson og Tómas Hermannsson,

Pétur Örn Guðmundsson,

Ragnar Hermannsson og Sigurjón Brink.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×