Almyrkvi í fyrramálið - tunglið verður rauðleitt 20. desember 2010 09:52 Það verður óneitanlega heldur jólalegt þegar tunglið fær á sig rauðleitan blæ í fyrramálið Mynd: Stjörnufræðivefurinn Sky & telescope
Á vetrarsólstöðum, þriðjudagsmorguninn 21. desember, á stysta degi ársins, verður almyrkvi á tungli. Almyrkvinn hefst klukkan 07:40 og stendur yfir til klukkan 08:54. Ef veður leyfir sést myrkvinn vel frá Íslandi þótt tunglið sé tiltölulega lágt á lofti á vesturhimni, rétt fyrir ofan Óríon, milli fótleggja Tvíburanna og horna Nautsins. Þetta kemur fram á Stjörnufræðivefnum. Seinast sást almyrkvi frá Íslandi aðfaranótt 21. febrúar 2008. „Þegar tunglið er inni í alskugga jarðar fær það á sig rauðleitan blæ. Þennan lit má rekja til allra sólarlaga og sólarupprása sem umlykja jörðina á þessu augnabliki. Sólarljósið berst í gegnum lofthjúp jarðar sem tvístrar rauða litnum síðar en hinum litunum. Ljósið berst til tunglsins og gefur því rauðan lit. Frá yfirborði tunglsins sæi geimfari þunnan rauðan hring umlykja myrkvaða jörð - án efa tignarleg sjón," segir þar. Tunglmyrkvar geta aðeins orðið þegar sólin, jörðin og tunglið liggja hér um bil í beinni línu. Á Stjörnufræðivefnum er fjallað ítarlega um almyrkvann. Umfjöllunina má lesa með því að smella hér. Þar er einnig að finna myndband þar sem líkt er eftir almyrkvanum á morgun. Horfið á það hér.
Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Innlent Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Erlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Erlent Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Erlent Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Innlent Fleiri fréttir Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Hundrað eldislaxar í Haukadalsá, ásakanir um samráð og blómlegt í Hveragerði Saka Storytel um að forgangsraða eigin efni á kostnað annarra Ekki tilkynnt um stórt gat á sjókví í nokkurn tíma þrátt fyrir eftirlit Taldi hundrað eldislaxa í neðri hluta Haukadalsár Tónlistarmaður taldi handtökuna ólögmæta en fór tómhentur heim Krefjast þess að ráðherra dragi ummæli sín til baka Samkeppniseftirlitið rannsakar Storytel Fá tímabundna undanþágu frá viðskiptaþvingunum Í samtali við norsku kafarana hvort þeir komi aftur Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði