Innlent

Útboð á mötuneyti Landspítala ógilt

Sælkeralausnir, sem fengu matsölu til starfsmanna Landspítalans í sinn hlut, uppfylltu ekki skilmála útboðs en tilboði Sláturfélagsins, sem uppfyllti skilmálana, var vísað frá. Fréttablaðið/Vilhelm
Sælkeralausnir, sem fengu matsölu til starfsmanna Landspítalans í sinn hlut, uppfylltu ekki skilmála útboðs en tilboði Sláturfélagsins, sem uppfyllti skilmálana, var vísað frá. Fréttablaðið/Vilhelm
Bjóða þarf aftur út rekstur á mötuneyti Landspítalans segir kærunefnd útboðsmála sem kveður Ríkiskaup hafa brotið á Sláturfélagi Suðurlands með því að vísa frá tilboði fyrirtækisins í útboði í fyrra.

Matsala fyrir starfsmenn Landspítalans var boðin út af Ríkiskaupum í júlí í fyrra. Sláturfélag Suðurlands var meðal bjóðenda en tilboði félagsins var vísað frá þar sem Ríkiskaup töldu það ekki stutt nægjanlegum gögnum um hæfi til að annast matsölu. Verkið kom í hlut Sælkeralausna, félags sem stofnað var í október 2008.

Sláturfélagið átti lægsta tilboðið í útboðinu. Kærunefndin tók undir með þeim sjónarmiðum félagsins að tilboð þess hafi í raun uppfyllt skilmála útboðsins.

Enn fremur tók kærunefndin undir með Sláturfélaginu að Sælkeralausnir uppfylltu ekki skilyrði útboðsins um að hafa að minnsta kosti tveggja ára reynslu að baki. Engu skiptu rök Ríkiskaupa um að „bjóðandinn á bak við“, Sælkeraveislur, uppfyllti skilyrðið eins og Ríkiskaup töldu fullnægjandi. Kærunefndin úrskurðaði Ríkiskaup til að greiða Sláturfélaginu 400 þúsund króna kostnað við kærumálið. Að auki eru Ríkiskaup skaðabótaskyld gagnvart Sláturfélaginu. - gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×