Vilja úttekt á rotþróm við Þingvallavatn 21. ágúst 2010 08:00 Þjóðgarðsvörður ætlar að beita sér fyrir því að gerð verði úttekt á neysluvatns- og fráveitumálum umhverfis Þingvallavatn. Fréttablaðið/Anton
Ekki er hægt að fullyrða að neysluvatn í sumarbústaðalandi í landi Kárastaða við Þingvallavatn sé mengað vegna seyrulosunar í grenndinni um síðustu helgi, segir Elsa Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Sýnataka í tveimur sumarbústöðum í landi Kárastaða við Þingvallavatn leiddi í ljós að vatnið er ekki drykkjarhæft. Tekin voru sýni í kjölfar frétta sem bárust af því að Holræsa- og stífluþjónusta Suðurlands hefði losað seyruvökva á vatnsverndarsvæði Þingvalla eftir að hafa verið fengin til að dæla upp úr rotþróm á svæðinu. Elsa segir að til þess að komast að niðurstöðu verði áfram tekin sýni á svæðinu næstu vikur. Elsa bendir á að mjög strangar reglur gildi um fráveitumál og neysluvatnsmál á vatnsverndarsvæði í kringum Þingvelli. Þær hafi verið settar til að vernda lífríki vatnsins. Hins vegar hafi aldrei verið gerð úttekt á því hvort sumarbústaðaeigendur við vatnið hlýði þeim reglum sem settar voru árið 2006. Neysluvatnsöflun og fráveitumál heyri undir hvern og einn sumarbústaðareiganda og þau séu ekki eftirlitsskyld. „Við leggjum því áherslu á að farið verði í það þarfa verk að kanna ástand fráveitna og neysluvatnsmála á öllu verndarsvæði Þingvalla,“ segir Elsa. Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður tekur undir þessi sjónarmið og segir mjög brýnt að gera úttekt á þessum málum. „Við höfum ekkert heildaryfirlit um ástand rotþróa við vatnið. Þetta er eitt af brýnustu verkefnum sem þjóðgarðurinn þarf að beita sér fyrir.“ Ólafur Örn segir vatns- og fráveitumál í góðu lagi í þjónustumiðstöð og á tjaldsvæði enda hafi miklu verið kostað til þar. Sumarbústaðaeigendur hafi örugglega margir hverjir farið að ströngustu kröfum, en vandamálið sé að vitneskjan um stöðuna liggi ekki fyrir. Ólafur harmar mjög atvik síðustu helgar og telur það algjörlega óafsakanlegt. Holræsa- og stífluþjónustan sendi frá sér yfirlýsingu í vikunni þar sem atvikið var harmað. Fyrirtækinu var veitt áminning af Heilbrigðiseftirlitinu í kjölfarið. Gunnar V. Guðmundsson, formaður Félags sumarbústaðaeigenda í landi Kárastaða, telur mjög líklegt að seyrulosunin hafi valdið menguninni. „Menn hafa verið að drekka vatnið í mörg ár og aldrei neitt komið upp. En eins og staðan er núna þá tökum við vatn með okkur eða sjóðum.“ sigridur@frettabladid.is
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Fleiri fréttir Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Sjá meira