Tvísýnni kosningar en reiknað var með 21. ágúst 2010 07:00 Julia Gillard steypti Kevin Rudd af stóli í júní og boðaði strax til kosninga í von um auðveldan sigur. nordicphotos/AFP
Julia Gillard komst til valda fyrir tveimur mánuðum, þegar hún hrakti Kevin Rudd úr embætti leiðtoga Verkamannaflokksins. Hún tók við leiðtogaembættinu og jafnframt embætti forsætisráðherra, og í beinu framhaldi af því boðaði hún til kosninga í þeirri von að kjósendur kynnu að meta nýjan leiðtoga sem talaði hreint út. Þannig mætti henni takast að snúa við slæmri útkomu flokksins í skoðanakönnunum. Henni virðist þó ekki ætla að verða að ósk sinni. Þvert á móti hefur Tony Abbott, leiðtogi íhaldsmanna, tekist að reka af sér slyðruorðið með þeim árangri að kosningarnar í dag verða með þeim tvísýnustu sem Ástralar hafa kynnst síðustu áratugina. Jafnvel bendir margt til þess að kjósendur ætli frekar að refsa Gillard fyrir þá bíræfni sem hún þykir hafa sýnt þegar hún tók völdin af Rudd. Þar á ofan virðast kjósendur ekki alls kostar sáttir við stefnu hennar í umverfismálum. Flestir stjórnmálaskýrendur hafa þó allt fram á síðasta dag spáð Verkamannaflokknum naumum meirihluta, sem myndi duga honum til að stjórna landinu annað kjörtímabil. Gillard hafði verið varaleiðtogi Rudds þegar hún nokkuð skyndilega bauð sig fram gegn honum í leiðtogakjöri flokksins í júní. Rudd hafði aldrei notið mikilla vinsælda í flokknum, þar sem hann var gagnrýndur fyrir að hafa sýnt hálfgerða einræðistilburði. Vegna slæmrar útreiðar flokksins í skoðanakönnunum átti Rudd í reynd litla möguleika þegar Gillard ákvað að bjóða sig fram. Átökin innan flokksins í tengslum við leiðtogakjörið hafa hins vegar torveldað Gillard að vinna fylgi meðal almennra kjósenda. Tony Abbott, leiðtogi íhaldsmanna, hefur grætt á þessu svo nú á hann möguleika á sigri, sem áður þótti nánast óhugsandi. Ekki einfaldaði það svo málin þegar 26 ára gömul dóttir Rudds, Jessica Rudd, gaf út fyrstu skáldsögu sína, sem fjallar um ástralskan forsætisráðherra sem felldur er af kvenkyns aðstoðarmanni sínum. Allt er það tómur skáldskapur, segir höfundurinn, og fullyrðir að bókin hafi verið frágengin í desember síðastliðnum, hálfu ári áður en sambærilegir atburðir gerðust í veruleikanum. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Fleiri fréttir Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Sjá meira