Innlent

Konur hvattar til krabbameinsskoðunar

Vísdómsperla Ágóðinn af sölunni rennur til styrktar leghálskrabbameinsleit Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins.
Vísdómsperla Ágóðinn af sölunni rennur til styrktar leghálskrabbameinsleit Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins.

Einungis 58 prósent kvenna á aldrinum 20 til 24 mæta í krabbameinsskoðun á Íslandi. Það er áhyggjuefni, segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, sem bendir á að í kjölfar skipulegrar leitar hafi tíðni leghálskrabbameins lækkað um 68 prósent og dánartíðni um 87 prósent.

Árleg árveknisvika, Evrópuvika gegn leghálskrabbameini, hefst 24. janúar. Af því tilefni verða seldar svokallaðar Vísdómsperlur um land allt í verslunum Lyfju, Apóteksins, Lyf og heilsu og Apótekarans. Ágóðinn af sölunni rennur til styrktar leghálskrabbameinsleit Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins.

Í Evrópu deyja 25.000 konur á ári hverju úr leghálskrabbameini.- sbt




Fleiri fréttir

Sjá meira


×