Lamandi fyrir mörg fyrirtæki 30. janúar 2010 06:00 Tryggvi þór herbertsson segir ákvörðun Landsbankans illa rökstudda og byggða á skammsýni. „
Ég fékk engin haldbær svör þegar ég bað um rökstuðning fyrir þessari ákvörðun bankans," segir Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins kölluðu til fundar í efnahags- og skattanefnd í gær til að fá skýringar á þeirri aðgerð bankans að hækka vaxtaálag á grunnvöxtum erlendra lána til fyrirtækja úr innan við tveimur í fjögur prósent. Tryggvi segir að ákvörðunin sé réttlætt með því að kostnaður sé að hækka hjá bankanum. Það standist hins vegar ekki skoðun. „Ég benti þeim á að þetta muni auka vanskil fyrirtækja og leiða einhver þeirra í gjaldþrot. Það myndi síðan auka afskriftir hjá bankanum þegar fram liði." Landsbankinn er langsamlega stærsti viðskiptabanki íslenskra fyrirtækja. Vel yfir helmingur allra sjávarútvegsfyrirtækja landsins eru til dæmis þar í viðskiptum en heildarskuldir greinarinnar eru 550 milljarðar. Tryggvi tekur dæmi af fyrirtæki sem skuldar tíu milljarða í erlendri mynt. Hækkun vaxtaálagsins þýðir um 300 milljóna álögur fyrir viðkomandi fyrirtæki sem geti skilið á milli þess að fyrirtæki haldi áfram rekstri eður ei. Tryggvi segir aðgerð bankans taktlausa í samhengi við þau skilaboð sem koma frá stjórnvöldum og hagsmunaaðilum um stöðu fyrirtækjanna. - shá
Mest lesið Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Innlent Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Innlent Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla Innlent Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Innlent Ræningjar fjölmenntu með byssur og haka í skartgripabúð Erlent Dróna- og skuggastríð í Evrópu: Hvað gengur Rússum til og hvað getur NATO gert? Erlent Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Innlent Sigar hernum á „hryðjuverkamenn“ í Portland Erlent Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Fleiri fréttir Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Jónína vill taka við af Ásmundi Einari „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Bætir þrepi við greiðsluþátttökukerfið Sjá meira