Innlent

Fölsuð lyf keypt í bílförmum

Milljónir Evrópubúa sniðganga lyfsala í leit að ódýrari lyfjum.
Milljónir Evrópubúa sniðganga lyfsala í leit að ódýrari lyfjum.

Rannsókn Samtaka gegn misferli og spillingu á heilbrigðissviði (EHFCN) sýnir að markaður með fölsuð lyf í Evrópu nemur 10,5 milljörðum evra á ári, eða um 1.200 milljörðum íslenskra króna.

Rannsóknin, sem gerð var að frumkvæði lyfjarisans Pfizer, náði til fjórtán þúsund manns í fjórtán löndum en einn af hverjum fimm viðurkenndi að hafa keypt lyfseðilsskyld lyf með ólögmætum leiðum. EHFCN segir það jafngilda því að 77 milljónir Evrópubúa kaupi slík lyf á hverju ári.

- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×