Helmingur strandveiðibáta braut reglur um hámarksafla 2. mars 2010 11:52 "
Það er staðreynd að a.m.k. helmingur þeirra 554 báta sem stunduðu svokallaðar strandveiðar á síðasta sumri braut gegn ákvæðum reglugerðar um hámarksafla," segir Friðrik Friðriksson, lögmaður Landssambands íslenskra útvegsmanna.Fjallað er um málið á vefsíðu LÍÚ. „Þau svör sem við höfum fengið frá Fiskistofu staðfesta í raun allar okkar verstu grunsemdir um það stjórnleysi sem einkenndi veiðarnar. Svörin undirstrika einnig það úrræðaleysi sem eftirlitsaðilar stóðu frammi fyrir. Strandveiðarnar hafa búið til stjórnsýslulegan óskapnað. Eftirlit með þeim er jafnmikið og eftirlit með öllum veiðum alls íslenska fiskiskipaflotans allan ársins hring," segir Friðrik ennfremur í frétt á vefsíðunni.Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu hafa 224 aðilar þegar fengið tilkynningu um álagningu vegna umframafla. Heildarupphæð álagningar nam um átta milljónum króna. Þá er enn eftir „að leggja gjald á 50 til 70 aðra vegna vegna veiða umfram leyfðan afla í hverri veiðiferð," svo vitnað sé beint til upplýsinga frá Fiskistofu. Þar er um að ræða aðila sem lönduðu beint á markað eða í beinni sölu en öflun gagna þar að lútandi hefur reynst tímafrek.Í reglugerð um veiðarnar var einnig kveðið á um að lengd hverrar veiðiferðar mætti ekki fara umfram 14 klukkustundir. Óskað var eftir upplýsingum um meðferð þeirra brota en í svari Fiskistofu segir orðrétt:„ ... reyndist ekki raunhæft að beita sviptingu strandveiðileyfis vegna slíkra brota þar sem meðferð slíkra mála á grundvelli málsmeðferðarreglna stjórnsýslulaga tók lengri tíma en veiðarnar stóðu yfir í hverjum mánuði. Í því sambandi skiptir einnig máli að strandveiðarnar voru stundaðar samkvæmt bráðabirgðaákvæði í lögum um stjórn fiskveiða sem heimilaði og fjallaði einungis um veiðarnar á síðasta fiskveiðiári."
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Bílvelta á Hringbraut Innlent Fleiri fréttir Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent